Teitur og Taktur blanda sér í baráttuna um titilinn

B-úrslitahrinunni lauk nú rétt í þessu með algjörri töltveislu í meistaraflokki. Teitur Árnason tryggði sér sæti í A-úrslitum og blandar sér því í baráttuna um Íslandsmeistaratitil í þeirri grein. Seinni í dag fer svo fram keppni í gæðingaskeiði og öll A-úrslit auk 100 metra skeiðis á morgun.

Verðlaunahafar í B-úrslitum í Tölti T1
Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
6 | Teitur Árnason / Taktur frá Vakurstöðum | 8,50 |
7 | Helga Una Björnsdóttir / Fluga frá Hrafnagili | 8,44 |
8 | Leó Geir Arnarson / Matthildur frá Reykjavík | 8,33 |
9 | Mette Mannseth / List frá Þúfum | 8,22 |
10 | Hanna Rún Ingibergsdóttir / Grímur frá Skógarási | 8,00 |