Hnokki til notkunar á Kirkjubæ
Hnokki og Helga Una á Íslandsmótinu ljósmynd/Eiðfaxi
Hnokki frá Eylandi verður til afnota á Kirkjubæ nú eftir Íslandsmót – hann er hátt dæmdur í kynbótadómi sem klárhestur með hvorki meira né minna en 8.94 í aðaleinkunn, 9.26 fyrir hæfileika og þar af 9.5 tölt, brokk, samstarfsvilji og stökk.
Hnokki er að sanna sig sem keppnishestur í fremstu röð – hampaði öðru sæti í slaktauma tölti T2( 8.54) og þriðja sæti í fjórgang (7.70) á nýafstöðnu Íslandsmóti á Hólum aðeins 8 vetra gamall.
Hnokki er undan heiðursverðlauna stóðhestinum Álf frá Selfossi og gæðingnum Hnátu frá Hábæ sem er hátt dæmd klárhryssa.
Verð á folatolli er 150.000 isl með öllu inniföldu (fyljun, girðingargjaldi og einni sóna skoðun)
Frekari upplýsingar gefur Hjörvar Ágústsson – 8480625
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH