Hryssur og yngstu stóðhestarnir hlutu dóm í dag í Borgarnesi
Ljósvaki frá Steinnesi Ljósmynd/ Facebooksíða Steinnes
Kynbótadómar fóru fram í dag á Fjórðungsmótinu í Borgarnesi þar sem Elsa Albertsdóttir, Guðlaugur Antonsson og Þorvaldur Kristjánsson skipa dómnefnd en um er að ræða núverandi og tvo fyrrum hrossaræktarráðunauta landsins. Alls hafa 35 hross verið dæmd í fullnaðardómi.
Allir aldusflokkar hryssa voru dæmdir í dag auk fjögurra vetra stóðhesta. Á morgun fara svo fram dómar á 5, 6 og 7 vetra og eldri stóðhestum og yfirlit allra kynbótahrossa er á föstudag.
Í flokki 4.vetra stóðhesta er Ljósvaki frá Steinnesi með hæstu aðaleinkunn fyrir yfirlit. Hann hafði hlotið fyrir sköpulag í vor 8,18, hlýtur nú fyrir hæfileika 8,08 og í aðaleinkunn 8,11. Sýnandi hans er Agnar Þór Magnússon en eigandi er Magnús Jósefsson. Faðir Ljósvaka er Gammur frá Steinnesi og móðir Djörfung frá Steinnesi.
Í flokki 7.vetra og eldri hryssa er Fjóla frá Eskiholti II með hæstan dóm meðn 8,13 fyrir sköpulag, 8,52 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,38. Þar ber hæst 9,5 fyrir skeiði. Sýnandi Fjólu er Valdís Björk Guðmundsdóttir en ræktandi og eigandi Birna Kristín Baldursdóttir. Faðir Fjólu er Abel frá Eskiholti II og móðir er Brá frá Eskiholti II.
Tromla frá Skipaskaga er efst sex vetra hryssa með 8,54 fyrir sköpulag, 8,33 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,41. Sýnandi Tromlu er Leifur George Gunnarsson en eigandi er Skipaskagi ehf og ræktandi Jón Árnason. Faðir Tromlu er Trymbill frá Stóra-Ási og móðir er Hviða frá Skipaskaga.
í flokki fimm vetra hryssa er hæst dæmda hryssan einnig frá Skipaskaga og heitir sú Sögn. Hún hefur hlotið 8,42 fyrir sköpulag, 8,23 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,30. Faðir er Skaginn frá Skipaskaga og móðir Saga frá Skipaskaga. Ræktendur eru Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir en eigendur Eyland Hrossarækt ehf og Skipaskagi ehf.
Röst frá Bergi er hæst dæmda 4.vetra hryssan að svo stöddu með 8,11 fyrir sköpulag, 7,88 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 7,96. Sýnandi hennar er Viðar Ingólfsson en ræktendur og eigendur eru Jón Bjarni Þorvarðarson og Anna Dóra Markúsdóttir. Faðir Rastar er Múli frá Bergi og móðir Skriða frá Bergi.
| Flokkur | Hross | Sýnandi | Sköpulag | Hæfileikar | Aðaleinkunn |
| 4 vetra hestar | Baldur frá Skógarnesi | Viðar Ingólfsson | 7,91 | ||
| 4 vetra hestar | Dreyri frá Blönduhlíð | Hlynur Guðmundsson | 8,15 | ||
| 4 vetra hestar | Ljósvaki frá Steinnesi | Agnar Þór Magnússon | 8,18 | 8,08 | 8,11 |
| 4 vetra hestar | Draupnir frá Holtsmúla 1 | Tryggvi Björnsson | 8,44 | 7,79 | 8,02 |
| 4 vetra hestar | Hátindur frá Álfhólum | Flosi Ólafsson | 8,21 | 7,72 | 7,89 |
| 4 vetra hestar | Abel frá Skáney | Flosi Ólafsson | 8,30 | 7,45 | 7,75 |
| 4 vetra hestar | Sesar frá Naustum | Agnar Þór Magnússon | 8,00 | 7,25 | 7,51 |
| 7 vetra hryssur og eldri | Tign frá Varmalandi | Árni Björn Pálsson | 7,97 | ||
| 7 vetra hryssur og eldri | Fjóla frá Eskiholti II | Valdís Björk Guðmundsdóttir | 8,13 | 8,52 | 8,38 |
| 7 vetra hryssur og eldri | Hátíð frá Reykjaflöt | Líney María Hjálmarsdóttir | 8,23 | 8,03 | 8,10 |
| 7 vetra hryssur og eldri | Snerpa frá Efri-Fitjum | Tryggvi Björnsson | 8,39 | 7,82 | 8,02 |
| 7 vetra hryssur og eldri | Glíma frá Gröf | Flosi Ólafsson | 8,29 | 7,84 | 8,00 |
| 7 vetra hryssur og eldri | Ásjóna frá Hæli | Bergrún Ingólfsdóttir | 8,64 | 7,25 | 7,74 |
| 6 vetra hryssur | För frá Kýrholti | Mette Camilla Moe Mannseth | 8,59 | ||
| 6 vetra hryssur | Snilld frá Miðsitju | Brynja Kristinsdóttir | 7,94 | ||
| 6 vetra hryssur | Tromla frá Skipaskaga | Leifur George Gunnarsson | 8,54 | 8,33 | 8,41 |
| 6 vetra hryssur | Skuggadís frá Hríshóli 1 | Agnar Þór Magnússon | 8,14 | 8,42 | 8,33 |
| 6 vetra hryssur | Íshildur frá Hólum | Konráð Valur Sveinsson | 8,42 | 8,22 | 8,29 |
| 6 vetra hryssur | Heiður frá Hofsstaðaseli | Bjarni Jónasson | 8,22 | 8,17 | 8,19 |
| 6 vetra hryssur | Karen frá Hríshóli 1 | Agnar Þór Magnússon | 8,33 | 8,05 | 8,15 |
| 6 vetra hryssur | Andrá frá Nýjabæ | Flosi Ólafsson | 8,24 | 7,91 | 8,02 |
| 6 vetra hryssur | Spenna frá Bæ | Barbara Wenzl | 8,19 | 7,80 | 7,94 |
| 6 vetra hryssur | Lind frá Svignaskarði | Valdís Björk Guðmundsdóttir | 8,24 | 7,62 | 7,84 |
| 5 vetra hryssur | Þrá frá Hofi | Agnar Þór Magnússon | 7,97 | ||
| 5 vetra hryssur | Staka frá Hólum | Mette Camilla Moe Mannseth | 8,49 | ||
| 5 vetra hryssur | Sögn frá Skipaskaga | Helga Una Björnsdóttir | 8,42 | 8,23 | 8,30 |
| 5 vetra hryssur | Hetta frá Söðulsholti | Björn Haukur Einarsson | 8,38 | 8,22 | 8,27 |
| 5 vetra hryssur | Kóróna frá Skrúð | Flosi Ólafsson | 8,44 | 8,05 | 8,19 |
| 5 vetra hryssur | Fjöður frá Enni | Bjarni Jónasson | 7,99 | 8,04 | 8,02 |
| 5 vetra hryssur | Dís frá Ytra-Vallholti | Bjarni Jónasson | 8,02 | 8,01 | 8,01 |
| 5 vetra hryssur | Grá frá Hofi á Höfðaströnd | Barbara Wenzl | 8,31 | 7,81 | 7,98 |
| 5 vetra hryssur | Einey frá Hæli | Tryggvi Björnsson | 8,14 | 7,80 | 7,92 |
| 5 vetra hryssur | Orka frá Skógarnesi | Viðar Ingólfsson | 8,55 | 7,58 | 7,92 |
| 5 vetra hryssur | Orka frá Breiðabólsstað | Flosi Ólafsson | 8,01 | 7,82 | 7,89 |
| 5 vetra hryssur | Unnur frá Vatni | Hlynur Guðmundsson | 7,85 | 7,86 | 7,86 |
| 5 vetra hryssur | Saga frá Kálfsstöðum | Barbara Wenzl | 7,96 | 7,66 | 7,77 |
| 5 vetra hryssur | Munúð frá Lækjamóti II | Þórarinn Eymundsson | 8,25 | 7,37 | 7,68 |
| 4 vetra hryssur | Skjaldbreið frá Breiðabólsstað | Brynja Kristinsdóttir | 8,03 | ||
| 4 vetra hryssur | Stöð frá Bergi | Viðar Ingólfsson | 7,96 | ||
| 4 vetra hryssur | Kjarnorka frá Flugumýri | Eyrún Ýr Pálsdóttir | 8,16 | ||
| 4 vetra hryssur | Röst frá Bergi | Viðar Ingólfsson | 8,11 | 7,88 | 7,96 |
| 4 vetra hryssur | Urður frá Gunnlaugsstöðum | Björn Haukur Einarsson | 8,11 | 7,55 | 7,75 |
| 4 vetra hryssur | Hróðný frá Akranesi | Hlynur Guðmundsson | 7,91 | 7,65 | 7,75 |
| 4 vetra hryssur | Von frá Ferjukoti | Flosi Ólafsson | 8,07 | 7,51 | 7,71 |
| 4 vetra hryssur | Gæfa frá Lækjamóti | Ísólfur Líndal Þórisson | 8,21 | 7,35 | 7,65 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH