Nökkvi með hæstan dóm fyrir yfirlit

Nökkvi og Jakob Svavar Ljósmynd/Iðunn Lilja
Forsýningu í flokki 5, 6 og 7 vetra gamalla stóðhesta og eldri er nú lokið en yfirlit kynbótahrossa fer fram á morgun.
Skyggnir frá Skipaskaga er með hæsta aðaleinkunn fimm vetra gamalla stóðhesta. Hann er með 8,66 fyrir sköpulag, 8,00 fyrir hæfileika og 8,23 í aðaleinkunn. Sýnandi hans er Daníel Jónsson, ræktendur og eigendur eru Jón Árnason og Sigurveig Stefánsdóttir. Faðir Skyggnis er Skýr frá Skálkoti en móðir Skynjun frá Skipaskaga.
Í flokki sex vetra stóðhesta er Kunningi frá Hofi efstur með 8,35 fyrir sköpulag, 8,38 fyrir hæfileika og í aðaleinkunn 8,37. Sýnandi er Viðar Ingólfsson en eigendur og ræktendur eru Jón Gíslason og Eline Manon Schrijver. Faðir Kunningja er Spuni frá Vesturkoti og móðir Kantata frá Hofi.
Í elsta flokki stóðhesta er það Nökkvi frá Hrísakoti sem er með hæstan dóm og er hann einnig hæst dæmda hross sýningarinnar fyrir yfirlit. Hann hlaut fyrir sköpulag 8,39, fyrir hæfileika 8,52 og í aðaleinkunn 8,47. Faðir Nökkva er Rammi frá Búlandi og móðir Hugrún frá Strönd II. Ræktandi og eigandi er Sif Matthíasdóttir. Jakob Svavar Sigurðsson sýndi Nökkva.
Flokkur | Hross | Sýnandi | Sköpul. | Hæfil. | Ae. |
7 vetra hestar og eldri | Nökkvi frá Hrísakoti | Jakob Svavar Sigurðsson | 8,39 | 8,52 | 8,47 |
7 vetra hestar og eldri | Álmur frá Reykjavöllum | Þórarinn Eymundsson | 8,56 | 8,36 | 8,43 |
7 vetra hestar og eldri | Huginn frá Bergi | Viðar Ingólfsson | 8,45 | 8,28 | 8,34 |
7 vetra hestar og eldri | Rosi frá Berglandi I | Magnús Bragi Magnússon | 8,29 | 8,25 | 8,27 |
7 vetra hestar og eldri | Sigursteinn frá Íbishóli | Magnús Bragi Magnússon | 8,11 | 7,98 | 8,03 |
6 vetra hestar | Kunningi frá Hofi | Viðar Ingólfsson | 8,35 | 8,38 | 8,37 |
6 vetra hestar | Atli frá Efri-Fitjum | Tryggvi Björnsson | 8,56 | 8,26 | 8,37 |
6 vetra hestar | Vigri frá Bæ | Viðar Ingólfsson | 8,58 | 8,20 | 8,33 |
6 vetra hestar | Ljómi frá Narfastöðum | Teitur Árnason | 8,41 | 8,17 | 8,25 |
6 vetra hestar | Hervar frá Innri-Skeljabrekku | Jakob Svavar Sigurðsson | 8,74 | 7,96 | 8,24 |
6 vetra hestar | Tjörvi frá Bæ 2 | Jakob Svavar Sigurðsson | 8,46 | 8,05 | 8,20 |
6 vetra hestar | Seiður frá Hólum | Konráð Valur Sveinsson | 8,29 | 7,97 | 8,08 |
5 vetra hestar | Skyggnir frá Skipaskaga | Daníel Jónsson | 8,66 | 8,00 | 8,23 |
5 vetra hestar | Salómon frá Efra-Núpi | Fredrica Anna Lovisa Fagerlund | 7,79 | 8,20 | 8,06 |
5 vetra hestar | Blæsir frá Hægindi | Agnar Þór Magnússon | 8,45 | 7,75 | 7,99 |
5 vetra hestar | Söngur frá Stóra-Ási | Gísli Gíslason | 8,72 | 7,53 | 7,95 |
5 vetra hestar | Framherji frá Skipaskaga | Daníel Jónsson | 8,46 | 7,58 | 7,89 |