Töltið í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöld
Keppni í tölti í Meistaradeild í hestaíþróttum á Suðurlandi hefur verið færð fram um einn dag og verður hún háð annað kvöld, miðvikudag. Ástæðan er sú að Sigurbjörn Bárðarson er á leið á aðalfund FEIF til að halda uppi vörnum fyrir íslenska reiðbeislið (stengurnar). Keppnin hefst á hefðbundnum tíma, klukkan 19.30.
Mörg úrvalshross eru á ráslistanum og er spennandi að sjá hvort knapar og dómarar munu taka mið af þeim anda sem sveif yfir vötnum á afmælishátíð FT, þar sem grunnatriðin: samspil, mýkt og sanngjarnar ábendingar, voru höfð að leiðarljósi. Forsala aðgöngumiða er hafin í verslunum Top Reiter, Líflands og Baldvini og Þorvaldi. Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
Ráslisti:
1 Bergur Jónsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Vakar frá Ketilsstöðum
2 Hinrik Bragason Árbakki / Norður-Götur Naskur frá Búlandi
3 Þorvaldur Árni Þorvaldsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Smyrill frá Hrísum
4 Sigursteinn Sumarliðason Spónn.is Alfa frá Blesastöðum 1A
5 Sigurður Óli Kristinsson Lýsi Svalur frá Feti
6 Sigurður Sigurðarson Lýsi Jódís frá Ferjubakka
7 Sigurbjörn Bárðarson Lýsi Jarl frá Mið-Fossum
8 Elvar Þormarsson Spónn.is Geisli frá Svanavatni
9 Hulda Gústafsdóttir Árbakki / Norður-Götur Sveigur frá Varmadal
10 Sveinn Ragnarsson Árbakki / Norður-Götur Frakkur frá Laugavöllum
11 Hekla Katharína Kristinsdóttir Auðsholtshjáleiga Vígar frá Skarði
12 Henna Johanna Sirén Spónn.is Ás frá Strandarhjáleigu
13 Snorri Dal Hrímnir Helgi frá Stafholti
14 Valdimar Bergstað Málning / Ganghestar Leiknir frá Vakurstöðum
15 John Kristinn Sigurjónsson Málning / Ganghestar Dáti frá Hrappsstöðum
16 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Auðsholtshjáleiga Hera frá Auðsholtshjáleigu
17 Anna Valdimarsdóttir Málning / Ganghestar Náttar frá Vorsabæjarhjáleigu
18 Bylgja Gauksdóttir Auðsholtshjáleiga Grýta frá Garðabæ
19 Arnar Bjarki Sigurðarson Hrímnir Kamban frá Húsavík
20 Jakob Svavar Sigurðsson Top Reiter / Ármót / 66°Norður Árborg frá Miðey
21 Viðar Ingólfsson Hrímnir Segull frá Miðfossum
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH