Yfirliti stóðhesta lokið

  • 9. júlí 2021
  • Fréttir

Dagný og Þorvaldur í Innri-Skeljabrekku taka við Blesabikarnum fyrir hest sinn Hervar

Yfirlit stóðhesta á Fjórðungsmóti Vesturlands er nú lokið.

Hervar frá Innri-Skeljabrekku er sá stóðhestur sem hæstan sköpulagsdóm hafði hlotið af þeim sem sýndir voru á Fjórðungsmóti og hlýtur því Blesabikarinn sem gefinn er til minningar um Marinó Jakobsson á Skáney.

Nökkvi frá Hrísakoti stóð efstur 7.vetra og eldri stóðhesta en hann er einnig hæst dæmda hross fjórðungsmótsins með 8,52 í aðaleinkunn. Sýnandi á honum var Jakob Svavar Sigurðsson.

Í flokki sex vetra stóðhesta stendur efstur Atli frá Efri-Fitjum með 8,50 í aðaleikunn sýndur af Tryggva Björnssyni.

Skyggnir frá Skipaskaga er hæst dæmdur af fimm vetra gömlum stóðhestum með 8,28 í aðaleinkunn en sýnandi hans var Daníel Jónsson.

Í flokki fjögurra vetra stóðhesta er það Draupnir frá Holtsmúla sem efstur stóð með 8,13 í aðaleinkun sýndur af Tryggva Björnssyni.

 

Flokkur Hross Sýnandi Sköpulag Hæfileikar Aðaleinkunn
7 vetra hestar og eldri Nökkvi frá Hrísakoti Jakob Svavar Sigurðsson 8,39 8,58 8,52
7 vetra hestar og eldri Álmur frá Reykjavöllum Þórarinn Eymundsson 8,56 8,41 8,46
7 vetra hestar og eldri Huginn frá Bergi Viðar Ingólfsson 8,45 8,42 8,43
7 vetra hestar og eldri Rosi frá Berglandi I Magnús Bragi Magnússon 8,29 8,38 8,35
7 vetra hestar og eldri Sigursteinn frá Íbishóli Magnús Bragi Magnússon 8,11 7,98 8,03
6 vetra hestar Atli frá Efri-Fitjum Tryggvi Björnsson 8,56 8,47 8,50
6 vetra hestar Vigri frá Bæ Viðar Ingólfsson 8,58 8,32 8,41
6 vetra hestar Kunningi frá Hofi Viðar Ingólfsson 8,35 8,38 8,37
6 vetra hestar Hervar frá Innri-Skeljabrekku Jakob Svavar Sigurðsson 8,74 8,08 8,32
6 vetra hestar Seiður frá Hólum Konráð Valur Sveinsson 8,29 8,27 8,28
6 vetra hestar Ljómi frá Narfastöðum Teitur Árnason 8,41 8,17 8,25
6 vetra hestar Tjörvi frá Bæ 2 Jakob Svavar Sigurðsson 8,46 8,05 8,20
5 vetra hestar Skyggnir frá Skipaskaga Daníel Jónsson 8,66 8,08 8,28
5 vetra hestar Blæsir frá Hægindi Agnar Þór Magnússon 8,45 7,87 8,07
5 vetra hestar Salómon frá Efra-Núpi Fredrica Anna Lovisa Fagerlund 7,79 8,22 8,07
5 vetra hestar Framherji frá Skipaskaga Daníel Jónsson 8,46 7,73 7,99
5 vetra hestar Söngur frá Stóra-Ási Gísli Gíslason 8,72 7,53 7,95
4 vetra hestar Draupnir frá Holtsmúla 1 Tryggvi Björnsson 8,44 7,96 8,13
4 vetra hestar Ljósvaki frá Steinnesi Agnar Þór Magnússon 8,18 8,08 8,11
4 vetra hestar Hátindur frá Álfhólum Flosi Ólafsson 8,21 7,82 7,96
4 vetra hestar Abel frá Skáney Flosi Ólafsson 8,30 7,62 7,86
4 vetra hestar Sesar frá Naustum Agnar Þór Magnússon 8,00 7,25 7,51

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar