Ræktunarbúið Íbishóli mætir aftur annað kvöld

  • 9. júlí 2021
  • Fréttir

Magnús Bragi bóndi á Íbishóli fann hug og hjörtu brekkunnar á Fjórðungsmóti

Sýning ræktunarbúa fór fram í kvöld hér á Fjórðungsmóti Vesturlands en alls sýndu sjö ræktunarbú gæðinga sína og var hörku stuð í brekkunni, hjá þeim fjölmörgu sem fylgdust með og tóku vel undir í fagnaðarlátum.

Ræktunarbúið á Íbishóli vann stemningskosninguna og mæta fulltrúar þess því aftur til leiks annað kvöld ásamt ræktunarbúi ársins 2020 og keppnishestabúi ársins 2020.

Þau bú sem mættu til leiks í kvöld voru eftirfarandi.

1. Skipanes
2. Íbishóll
3. Skáney
4. Berg
5. Steinnes
6. Hrísdalur
7. Hof á Höfðaströnd

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link