Opið gæðingamót Flúðum
Opið gæðingamót verður haldið dagana 22. – 25.júlí næstkomandi.
Mótið verður með hefðbundnu sniði.
Flokkar í boði: A- flokkur, A-flokkur áhugamanna, A- flokkur ungmenna, B-flokkur, B- flokkur áhugamanna, B- flokkur ungmenna, unglingaflokkur, barnaflokkur, tölt T3 – 18 ára og eldri, tölt T3 – 17 ára og yngri, tölt T7 – börn og 100m skeið.
Skráningargjald: í eldri flokka og skeið er 6.000 kr og í yngri flokka 4.000 kr.
Skráning fer fram inná sportfeng. Skráning hefst 16.júlí og lýkur að miðnætti 19.júlí. Mótanefnd áskildur sér þann rétt að fella niður flokka ef ekki er næg þátttaka.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH