Hollenska meistaramótið hófst í gær

  • 7. ágúst 2021
  • Fréttir

Nils Christian og Gustur vom Kronshof Ljósmynd/Josefine Van Vessem

Hollenska meistaramótið fer fram nú um helgina og er haldið í Exloo. Keppni hófst í gær á forkeppni í fjórgangi, fimmgangi og keppni í gæðingaskeiði.

Mótið verður frítt í beinni útsendingu á morgun á úrslitadeginum og má horfa með því að smella hér.

Nils Christian Larsen hefur mikla yfirburði eftir að forkeppni er lokið. Hann sýndi Gust vom Kronshof í fimmgangi og hlaut 7,37 í einkunn en hann reið honum einnig til sigurs í gæðingaskeiði. Í fjórgangi er hann á Flaumi frá Sólvangi og hlaut 7,47 í einkunn. Þar er örlítið styttra í næstu keppendur því Pernille Lyager Moller er í öðru sæti á Rokki frá Ytra-Vallholti með 7,43.

Fimmgangur 5 efstu

Pos. Rider Horse Score
1 Nils Christian Larsen Gustur vom Kronshof 7,37
2 Anne-Lene van Engelen Fákur frá Mið-Fossum 6,23
3 Ralf Wohllaib Jódís von Vinkona 6,20
4 Emma van der Veer Jónatan frá Breiðablik 6,00
5 Christa Rike Barón frá Waldthorst 5,97

 

Fjórgangur 5 efstu

Pos. Rider Horse Score
1 Nils Christian Larsen Flaumur frá Sólvangi 7,47
2 Pernille Lyager Møller Rokkur frá Ytra-Vallholti 7,43
3 Martin Rønnestad Múli frá Bergi 6,93
4 Martin Rønnestad Náttar fra Slippen 6,80
5 Arja Schuurmans Falur frá Skarði 6,50

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link