Frábær tilþrif á þýska meistaramótinu

  • 9. ágúst 2021
  • Fréttir

Þrír efstu knapar í fjórgangi. F.v. Irene Reber, Lilja Thordarson og Vanessa Reisinger. Ljósmynd/Henk Peterse

Þýska meistaramótinu lauk í gær með A-úrslitum í hringvallargreinum og keppni í 100 metra skeiði. Keppni var æsispennandi og óvænt úrslit litu dagsins ljós. Íslendingar mættu læra margt af framkvæmd verðlaunaafhendinga frá þessu móti. Glæsilegur verðlaunapallur var á miðju vallarins þar sem þrír efstu knapar stigu upp á og voru verðlaunaðir með mikilli viðhöfn, þýski þjóðsöngurinn spilaður og allt hið hátíðlegasta.

Þá ber að hrósa góðri útsendingu frá mótinu og var fróðlegt að fylgjast með og sjá hestakostinn þar ytra sem var breytilegur.

Að mati greinarhöfundar lágu dómarar fremur hátt og einkunnir eftir því, útskýrist það helst af því að þeir knapar sem náðu ekki að sýna sitt besta fengu of hátt og þurfti því, sem eðlilegt er, að gefa þeim sem greinilega voru með meiri reiðfærni og betur ríðandi hærri einkunn. Bestu knapar og hestar á þessu móti eru þó á heimsmælikvarða og verða illviðráðanlegir á næsta heimsmeistaramóti. Dómarar þurfa að vera ófeimnari við að nota teygni við dómstörf, bæði upp og niður og á þetta ekki aðeins við þýska meistaramótið heldur dómgæslu almennt.

Í fréttinni verður farið yfir helstu úrslit frá mótinu. En ljósmyndir sem fylgja tóku velunnarar og vinir Eiðfaxa þau Henk Peterse og Patty van der Kaiij og eru þær birtar með góðfúslegu leyfi þeirra.

Lilja Thordarson varð þýskur meistari í fjórgangi á Hjúpi frá Herríðarhóli með einkunnina 7,63. Lilja var fimmta eftir forkeppnina en stóð uppi sem sigurvegari. Til gamans má geta þess að Hjúpur er undan Stormi frá Herríðarhóli og Hyllingu frá Herríðarhóli og er því m.a. sammæðra Sólfaxa frá Herríðarhóli

Sæti. Knapi Hestur Einkunn
1 Lilja Thordarson Hjúpur frá Herríðarhóli 7,63
2 Irene Reber Þokki frá Efstu-Grund 7,60
3 Vanessa Reisinger Spuni vom Pfaffenbuck II 7,53
4 Johanna Beuk Jódís vom Kronshof 7,47
4 Lisa Drath Ísöld frá Strandarhjáleigu 7,47
6 Jolly Schrenk Glæsir von Gut Wertheim 7,23

Lilja og Hjúpur urðu nokkuð óvænt þýskir meistarar í fjórgangi

Frauke Schenzel vann fimmgang með yfirburðum á Óðni vom Habichtswald með frábæra einkunn 8,07. Óðinn er fagurlega skapaður gæðingur sem hlotið hefur 8,42 fyrir sköpulag í kynbótadómi, fyrir hæfileika 9,02 og í aðaleinkunn 8,79. Hann er undan Fannari frá Kvistum og Óskadís vom Habichtswald. Frauke varð einnig meistari í samanlögðum fimmgangsgreinum á Óðni.

Sæti. Knapi Hestur Einkunn
1 Frauke Schenzel Óðinn vom Habichtswald 8,07
2 Vicky Eggertsson Gandur vom Sperlinghof 7,62
3 Lisa Drath Byr frá Strandarhjáleigu 7,33
4 Silvia Ochsenreiter-Egli Heljar frá Stóra-Hofi 7,17
5 Leonie Hoppe Fylkir vom Kranichtal 7,14
6 Beggi Eggertsson Eldur frá Hrafnsholti 6,88

Frauke Schenzel og Óðinn vom Habichtswald

Í 100 metra skeiði fóru 14 hestar á undir 8 sekúndum og þó nokkuð margir vel rúmlega það.

Markus Albrecht-Schoch og Kóngur frá Lækjamóti náðu bestum tíma er þeir fóru á 7,13 sem er besti tími ársins í þessari grein. Kóngur er 19 vetra undan Kolfinni frá Kjarnholtum og Höffu frá Samtúni. Elvar Einarsson keppti lengi vel á Kóngi með góðum árangri.

Sæt. Knapi Hestur Tími
1 Markus Albrecht-Schoch Kóngur frá Lækjamóti 7,13″
2 Ladina Sigurbjörnsson-Foppa Losti frá Ekru 7,28″
3 Steffi Plattner Ísleifur vom Lipperthof 7,39″
4 Jens Füchtenschnieder Sproti vom Mönchhof 7,48″
5 Siggi Narfi Birgirsson Snarpur frá Nýjabæ 7,49″

 

Jolly Schrenk og Glæsir von Gut Wertheim urðu þýskir meistarar í slaktaumatölti með 8,79 í einkunn. Glæsir er þýsk ættaður hestur en í ættartréi hann er þó að finna gamla íslenska stofna og er hann tvöfalt út af Herði frá Kolkuósi blandað við Kirkjubæjar og Sauðárkrókshross í gegnum Sörla og Þátt. Jolly varð einnig samanlagður meistari í fjórgangsgreinum.

Sæti Knapi Hestur Einkunn
1 Jolly Schrenk Glæsir von Gut Wertheim 8,79
2 Frauke Schenzel Mæra vom Kronshof 8,29
3 Daniel C. Schulz Spuni vom Heesberg 8,21
4 Leonie Hoppe Fylkir vom Kranichtal 7,58
5 Stefan Schenzel Óskadís vom Habichtswald 3,83

 

Irene Reber og Þokki frá Efstu-Grund unnu síðustu úrslitin sem fram fóru í gær en þau voru í tölti T1. Heildareinkunn þeirra var 8,0. Þokka kannast flestir við eftir glæstan sigur Kristínar Lárusdóttir á honum í þessari grein á HM2015. Þokki er undan Andvara frá Ey 1 og Kötlu frá Ytri-Skógum. Sammæðra Þokka er hestadjásnið Askja frá Efstu-Grund.

Sæti. Knapi Hestur Einkunn
1 Irene Reber Þokki frá Efstu-Grund 8,00
2 Lena Maxheimer Abel fra Nordal 7,94
3 Lisa Drath Konsert frá Hofi 7,78
4 Johanna Beuk Mía frá Flagbjarnarholti 7,72
5 Frauke Schenzel Glanni frá Austurási 7,50
6 Thorsten Reisinger Ari frá Stóra-Hofi 7,00

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar