Markaðsmálin ofarlega á baugi

  • 13. febrúar 2013
  • Fréttir
Markaðsmálin ofarlega á baugi

 

 

JENS EINARSSON:
 
Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda og Fagráðs í hrossarækt, og Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur, hefja árlega fundaferð sína um málefni hrossaræktarinnar í Hlíðarbæ í Eyjafirði mánudaginn 18. febrúar.
 
Kristinn segir að Guðlaugur muni að venju fara yfir hrossaræktarárið 2012. Að öðru leyti verði þema fundanna í fyrsta lagi áætlun Fagráðs í bættri og nákvæmari heilbrigðisskoðun á kynbótasýningum, og í öðru lagi markaðsmál hrossabænda.
„Við erum alls ekki að segja okkur frá skoðuninni „Klár í keppni“ sem fer fram á Landsmótum. Við tókum þátt í henni í fyrra og munum gera það áfram. Við viljum hins vegar þróa og bæta heilbrigðisskoðun á héraðssýningum kynbótahrossa. Við munum halda námskeið í samvinnu við dýralækna fyrir okkar starfsfólk, sem áfram mun sjá um þessa skoðun á héraðssýningunum.
Hvað markaðsmálin varðar þá er ljóst að þar verður eitthvað að gerast. Menn hafa hins vegar ólíkar skoðanir á því hvaða leiðir er best að fara í þeim efnum og það ætlum við að ræða og gefa fólki kost á að setja fram hugmyndir. 
Vandinn er sá að keppnis- og kynbótahross eru einu hrossin sem seljast á viðundandi verði. Það er hins vegar álitamál hversu mikið við getum stækkað þann kaupendahóp. Og hvort við getum þá framleitt nægilega mikið af topp hrossum, sem líkleg eru til að standa í fremstu röð. Fæst bú ná að framleiða mörg slík hross á ári.
En það eru ýmis sóknarfæri í hrossabúskapnum til viðbótar sjálfri hrossaræktinni. Margir hafa reyndar þegar nýtt sér þá möguleika. Þar má nefna hestaleigur og hestaferðir, uppeldi og umsjón kynbótagripa, og svo framvegis. En best væri auðvitað ef góð sala væri í traustum og þægum reiðhestum fyrir fjöldann og að viðunandi verð fengist fyrir þá. Raunhæfasta leiðin hlýtur að vera sú að minnka framleiðslukostnaðinn með því að stytta tamninga- og þjálfunartímann. Þar eiga hrossaræktendur möguleika; að leggja áherslu á trausta lund og auðvelt tölt,“ segir Kristinn Guðnason.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link