Svar Meistaradeildarinnar ófullnægjandi
Mér finnst þessi tilkynning frá þeim ekki góð. Hún svarar ekki minni gagnrýni sem var fyrst og fremst gagnrýni á það hvernig þessi liða skipti urðu til núna. Eitt lið hættir, Gegnishólaliðið, og það virðist vera hægt að búa til annað lið án þess raunverulega að sækja um? Því það kemur fram í þessari tilkynningu að liðið hafi ekki sótt um. Hefði ekki verið eðlilegt að auglýsa aftur þar sem vantaði lið í deildina?
Mér finnst mjög lélegt að halda því að þessi tilkynning frá þeim svari minni gagnrýni. Þeir fara einungis að tala um úrtöku sem eru reglur sem þeir hafa sett fram núna en eru þó ekki nógu skýrar. Þegar þær reglur eru lesnar þá kemur í ljós mjög alvarleg brotalöm á þeim. Þær eru þannig að það kemur fram í hverju á að keppa og hvernig hún eigi að fara fram. Það segir ekkert til um hvernig á að túlka niðurstöðurnar. Hvernig komast liðinn inn í deildina. Þarftu að vinna allar greinarnar? Safnarðu stigum? Þú veist það ekki. Ef þú tækir þátt í þeirri úrtöku þá ertu enn og aftur að renna blint í sjóinn. Ætlar stjórnin síðan enn og aftur að vera með huglægt mat á því hverjir fá að fara inn?
Þetta hefur verið mér hugleikið og ég vil stundum tjá mig um hlutina og hafa skoðun á hlutunum. Fólk hefur tjáð sig um þetta mikið við mig og ég skynja þreytu í garð deildarinnar. Þá meina ég það að það sé engin endurnýjun. Það er enginn spenna í kringum það hvort einhver sé að fara inn og út úr deildinni. Nema svo gerist þetta núna að það verður til nýtt lið eins og þruma úr heiðskýra lofti og fólk stendur eftir gapandi hvernig má það vera? Þvert ofan í allar reglur. Það stendur ekkert á bakvið það.
Ég vil skora á Meistaradeildina að gera algjörlega hreint fyrir sínum dyrum með reglum deildarinnar. Ekki skauta framhjá hlutunum eins og þeir virðast ætla reyna gera núna. Það er krafa alls staðar í kringum mig. Fólk vill deildinni vel og hafa hlutina í lagi.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH