Óskar á leið úr landi

  • 12. september 2021
  • Fréttir
"Þetta var mjög erfið ákvörðun en mér fannst tíminn vera kominn"

Einn farsælasti keppnishestur landsins, Óskar frá Breiðstöðum, er seldur en hann heldur til Danmerkur á morgun.

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir og Óskar hafa vakið mikla athygli á keppnisbrautinni og Óskar er einn fremsti slaktaumatöltari og fjórgangari landsins. Afrek þeirra eru mörg en þau m.a. sigruðu slaktaumatöltið í Meistaradeildinni í vetur og voru efst eftir forkeppni á Íslandsmóti með 8,63 í einkunn en urðu síðan fyrir því óhappi að missa skeifu í úrslitunum. Þau urðu í öðru sæti í fjórgangi á Íslandsmótinu með 7,83 í einkunn.

Í samtali við Aðalheiði segir hún að ákvörðunin um að selja hann hafi verið mjög erfið enda Óskar einstakur hestur. „Þetta var mjög erfið ákvörðun en mér fannst tíminn vera kominn. Ég var búin að vera með þessa tímasetningu í huga frá síðasta heimsmeistaramóti. Við fundum líka frábærann kaupanda og hann fer á frábært heimili svo mér leið vel með að senda hann frá mér,“ segir Aðalheiður og bætir við að hans verði sárt saknað enda einn mesti og besti höfðingi sem hún hafi kynnst. Aðspurð hvort Aðalheiður sé komin með arftaka telur hún sig vera með margt spennandi. „Ég er með frænda hans Flóvent frá Breiðstöðum. Virkilega spennandi 7 vetra geldingur sem verður ekkert síðri hestur held ég. Pabbi hans Pan frá Breiðstöðum er albróðir mömmu Óskars, Fantasíu frá Breiðstöðum. Við höfum nú þegar farið yfir 7,0 í þremur greinum á okkar fyrsta keppnistímabili. Virkilega efnilegur og góður hestur,“ segir Aðalheiður.

Nýr eigandi Óskars er Elin Virgarsdottir Tindskard en hún er einnig eigandi Hlekks frá Þingnesi sem var lengi í fremstu röð á keppnisbrautinn hér heima fyrir nokkrum árum undir stjórn Eyjólfs Þorsteinssonar. Stefnan er að Óskar verði keppnishestur hjá henni svo við munum eflaust sjá eitthvað frá þeim á keppnisbrautinni á næstu árum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link