Uppsveitadeildin heldur áfram
Þriðja mót Uppsveitadeildarinnar fer fram næstkomandi föstudagskvöld kl. 20 í reiðhöllinni á Flúðum en þá verður keppt í fimmgangi að er fram kemur í tilkynningu frá hestamannafélaginu Smára.
„Keppnin í einstaklings og liðakeppninni er jöfn og spennandi, til mikils er að vinna og ljóst er að allt getur gerst.
Eins og staðan er eftir 2 mót leiðir Aðalheiður Einarsdóttir einstaklingskeppnina.
Liðakeppnina leiðir lið JÁVERKS, hálfu stigi þar á eftir er LAND&HESTAR svo O.K. PROSTHETICS og HAUKARNIR ekki langt undan.
Á laugardaginn fer svo fram keppni í Uppsveitadeild Æskunnar þar sem unglingarnir þreyta einnig keppni í fimmgangi en keppt verður í þrígangi í barnaflokki. Keppni hefst á forkeppni í barnaflokki stundvíslega kl. 14.
Um kvöldið verður svo sameiginlega árshátíð hestamannafélaganna Smára, Loga og Trausta sem standa saman að þessum mótaröðum.
Allar frekari upplýsingar um árshátíðina og Uppsveitadeildina má finna inn á www.smari.is.
Meðfylgjandi er ráslisti föstudagskvöldsins:
1 HAUKARNIR Aðalheiður Einarsdóttir Dísa frá Refsstöðum 5v. Fífilbleiknösótt
2 LAND OG HESTAR Gunnlaugur Bjarnason Smári frá Hlemmiskeiðið 1A 9v. Brúnn
3 BYKO Halldór Þorbjörnsson Sædís frá Hveragerði 9v. Jarptvístjörnótt
4 VORMENN Einar Logi Sigurgeirsson Gjöf frá Kýrholti 6v. Brún
5 JÁVERK Guðrún S. Magnúsdóttir Baugur frá Bræðratungu 6v. Rauðtvístjörnóttur
6 HÓTEL GEYSIR/ÁSTUND Þórey Helgadóttir Þyrnirós frá Reykjavík 7v. Rauð
7 O.K PROSTHETICS Kristbjörg Kristinsdóttir Ilmur frá Jaðri 6v. Brúnstjörnótt
8 HAUKARNIR Sigurður Sigurjónsson Blúnda frá Arakoti 5v. Brúnblesótt
9 LAND OG HESTAR Hulda Hrönn Stefánsdóttir Gyðja frá Hrepphólum 8v. Jörp
10 BYKO Linda Dögg Snæbjörnsdóttir Drottning frá Efsta-Dal II 5v. Brún
11 VORMENN Ingvar Hjálmarsson Hringur frá Húsatóftum 12v. Rauður
12 JÁVERK Sigvaldi Lárus Guðmundsson Leiftur frá Búðardal 13v. Rauðstjörn.glófextur
13 HÓTEL GEYSIR/ÁSTUND Knútur Ármann Hruni frá Friðheimum 7v. Móálóttur
14 O.K PROSTHETICS Guðmann Unnsteinsson Prins frá Langholtskoti 8v. Jarpur
15 HAUKARNIR Helgi Kjartansson Panda frá Hvammi 8v. Moldótt
16 LAND OG HESTAR Bjarni Birgisson Stormur frá Reykholti 11v. Jarpur
17 BYKO Sigurður Halldórsson Vísa frá Halakoti 7v. Jörp
18 VORMENN Hermann Þór Karlsson Blær frá Efri-Brúnavöllum 7v. Brúnn
19 JÁVERK Líney Kristinsdóttir Muska frá Skógskoti 8v. Móálótt
20 HÓTEL GEYSIR/ÁSTUND Sólon Morthens Frægur frá Flekkudal 8v. Grár
21 O.K PROSTHETICS Hólmfríður Kristjánsdóttir Spá frá Skíðbakka 11v. Jörp
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH