Hestamannakvöld Framsóknar!
Framsókn í Reykjavík býður hestafólki í gleðskap og spjall við frambjóðendur í Félagsheimili Fáks í Víðidal á morgun, föstudag, 17.september kl 20:00
Búast má við góðri skemmtun, söng og gleði eins og alltaf þegar hestamenn og Framsóknarmenn koma saman. Mun Karlakór Kjalnesinga stíga á stokk og rífa upp stemninguna með söng og gleði. Fljótandi veitingar og skemmtun eins og hestamönnum einum er lagið.
Hægt er að sjá frekari upplýsingar á viðburðinum Hestamannakvöld Framsóknar á Facebook.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt