Laufskálarétt um næstu helgi
Laufskálarétt í Hjaltadal verður haldin næstu helgi, laugardaginn 25.september, og Víðidalstungurétt í Víðidal fer fram 5. október. Réttirnar hafa verið mikil mannamót og hápunktur hjá mörgum hestamanninum. Stóðréttir verða eflaust með öðrum brag en fyrri ár vegna kórónuveirufaraldursins og eru allir hvattir til að kynna sér vinnulag á hverjum stað áður en haldið er til rétta. Eins og staðan er í dag eru fjöldatakmarkanir 500 manns og í samtali við forsvarsmenn Víðidalstungurétta sögðu þeir að fólk væri velkomið að kíkja í réttina en farið yrði eftir sóttvarnarreglum í landinu.
Stefnt er að halda reiðhallasýningu í tengslum við Laufskálaréttir bæði á föstudagskvöldinu og laugardagskvöldinu en hægt er að skoða viðburðinn hér. Þeir sem hafa áhuga á að mæta með hross á sýningarnar er bent á að heyra í Magnúsi og Elisbeth á Íbishóli en miðasala er hafin á sýningarnar og kostar 4.000 kr. sitthvort kvöldið.
Listi yfir helstu stóðréttir haustið 2021
| Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. | laugardaginn 25. sept. kl. 16.00 |
| Árhólarétt (Unadalsrétt) við Hofsós, Skag. | föstudaginn 24. sept. |
| Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. | föstudaginn 24. sept. |
| Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. | |
| Fossárrétt á Skaga, A.-Hún. | laugardaginn 18. sept. |
| Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. | sunnudaginn 19. sept. kl. 16.00 |
| Kjalarlandsrétt, A.-Hún. | laugardaginn 18. sept. |
| Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. | laugardaginn 25. sept. |
| Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit | laugardaginn 2. okt. kl. 13.00 |
| Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. – Hún. | laugardaginn 4. sept. kl. 7.00 |
| Selnesrétt á Skaga, Skag. | laugardaginn 18. sept. |
| Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. | laugardaginn 18. sept. kl. 14.00 |
| Skrapatungurétt í A.-Hún. | sunnudaginn 19. sept. kl. 11.00 |
| Staðarrétt í Skagafirði | laugardaginn 18. sept. |
| Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. | laugardaginn 2. okt. kl. 13.00 |
| Unadalsrétt (Árhólarétt) við Hofsós, Skag. | föstudaginn 24. sept. |
| Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. | laugardaginn 25. sept. kl. 9.00 |
| Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. | laugardaginn 2. okt. kl. 11.00 |
| Þverárrétt í Eyjafjarðarsveit | laugardaginn 2. okt. kl. 10.00 |
| Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. | laugardaginn 25. sept. kl. 12.30 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH