Sylvía og Þröstur sigruðu í Skagfirsku mótaröðinni
Mikil spenna var í fimmgangsmóti Skagfirsku mótaraðarinnar sem fram fór í gær.
Þrír nemendur af reiðkennarabraut Hólaskóla og tveir kennarar Hólaskóla öttu kappi í A-úrslitum 1. flokks. Nemandinn Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Þröstur frá Hólum slóu þó kennurum sínum við og sigruðu með glæsilegri sýningu að er fram kemur í tilkynningu frá reiðhöllinni Svaðastöðum. Önnur varð Metta Mannseth og Hnokki frá Þúfum og Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hreimur frá Flugumýri urðu þriðju.
Húnvetningurinn Greta B. Karlsdóttir varð sigurverari í 2. flokki á Kátínu frá Efri-Fitjum en fast á hæla hennar var Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir á Lyftingu frá Hjaltastöðum.
Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
2. flokkur
Úrslit
1. Greta B Karlsdóttir – Kátína frá -Fitjum 5,57
2. Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir – Lyfting frá Hjaltastöðum 5,43
3. Herdís Rútsdóttir – Vornótt frá Ásgeirsbrekku 4,43
4. Ásdís Ósk Elvarsdóttir – Hrappur frá Sauðárkróki 3,80
Forkeppni
Greta B Karlsdóttir Kátína frá Efri-Fitjum 5,26
Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir Lyfting frá Hjaltastöðum 5,00
Herdís Rútsdóttir Vornótt frá Ásgeirsbrekku 3,63
Ásdís Ósk Elvarsdóttir Hrappur frá Sauðárkróki 3,26
Cloria Kuch Segull frá Halldórsstöðum 2,43
1. flokkur
A-Úrslit
1. Sylvía Sigurbjörnsdóttir – Þröstur frá Hólum 6,80
2. Mette Mannseth – Hnokki frá Þúfum 6,73
3. Eyrún Ýr Pálsdóttir – Hreimur frá Flugumýri 6,67
4. Ísólfur Líndal Þórisson – Ræll frá Gauksmýri 6,43
5. Daníel Larsen – Kjarni frá Lækjamóti 6,33
B-Úrslit
5. Ísólfur Líndal Þórisson – Ræll frá Gauksmýri 6,40
6. Ragnhildur Haraldsdóttir – Freyþór frá Hvoli 6,20
7. James Bóas Faulkner – Flugar frá Barkarstöðum 6,17
8. Jón Herkovic – Formúla frá Vatnsleysu 5,97
9. Elvar E Einarsson – Kóngur frá Lækjamóti 5,53
Forkeppni
Sylvía Sigurbjörnsdóttir Þröstur frá Hólum 6,83
Daníel Larsen Kjarni frá Lækjamóti 6,20
Eyrún Ýr Pálsdóttir Hreimur frá Flugumýri 6,16
Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum 6,16
Jón Herkovic Formúla frá Vatnsleysu 5,90
James Bóas Faulkner Flugar frá Barkarstöðum 5,76
Ragnhildur Haraldsdóttir Freyþór frá Hvoli 5,73
Elvar E Einarsson Kóngur frá Lækjamóti 5,70
Ísólfur Líndal Þórisson Ræll frá Gauksmýri 5,66
Elvar Logi Friðriksson Harpa frá Margarétarhofi 5,53
Linda Rún Pétursdóttir Skinna frá Grafarkoti 5,50
Brynjólfur Þór Jónsson Prins frá Reykjum 5,46
Elvar E Einarsson Taktur frá Hestasýn 5,10
Daníela Pógatschnig Smári frá Kollaleiru 5,06
Elvar Logi Friðriksson Sjón frá Grafarkoti 4,93
Aníta Aradóttir Villandi frá Feti 4,76
Riikka Anniina Stirnir frá N-Vindheimum 4,70
Hanna Charge Stormur frá Steinum 4,53
Hallfríður S Óladóttir Rán frá Skefilsstöðum 4,33
Guðmundur Margeir Skúlason Fannar frá Hallkelsstaðarhlíð 4,33
Rósa Birna Þorvaldsdóttir Vísir frá Þúfu 4,10
Björn Jóhann Steinarsson Þyrnir frá Borgarhóli 3,96
Símon Ingi Gestsson Sleipnir frá Barði 2,80
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH