Sölusýning á Melgerðismelum
Hrossaræktarfélagið Náttfari stendur fyrir sölusýningu á Melgerðismelum, Stóðréttardaginn 8. október n.k. að er fram kemur á heimasíðu félagsins.
„Boðið er upp á sýningu taminna hrossa í reið og sýningu unghrossa í Melaskjóli.
Skráning berist á netfangið [email protected] með upplýsingum um:
A. Nafn hross og fæðingarnúmer þess
B. Lýsing eiganda/umráðamanns á hrossinu
C. Verð
D. Eiganda og/eða umráðamann
Gefin verður út sýningarskrá auk þess sem hrossin verða mynduð og þær upplýsingar gerðar aðgengilegar á Netinu.
Verðskrá sölusýningarinnar er tvískipt:
– Hross í reið, mynduð og auglýst á Netinu: 3500.-
– Ótamin hross, upplýsingar settar á Netið: 1500.-
Félagar í Náttfara fá 500.- kr afslátt á þessum verðum.
Upplýsingar fást hjá Þorsteini Egilson, 8952598/[email protected].“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH