Vinnusýning með Benedikt Líndal á Flúðum
Vinnusýning með Benedikt Líndal tamningameistara verður fimmtudaginn 7.október kl. 20:00 í Reiðhöllinni á Flúðum.
Benedikt kemur með nokkur hross og leiðir áhorfendur í gegnum fróðlegt og skemmtilegt vinnuferli með þau. Þetta eru ung hross á mismunandi stigum ásamt vinnuhesti og vinnusýningin stendur í rúma tvo klukkutíma með hléi.
Aðgangseyri 2000 kr á mann og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH