Niðurstöður úr könnun vegna heimsmeistaramóta

  • 7. október 2021
  • Fréttir
Ungmennafélagsandinn í bland við það besta.

Heimsmeistaramótin hafa verið að þróast í stórviðburð með fjölmörgum áskorunum fyrir samtökin, aðildarlöndin og lið þeirra, auk FEIF. Endurskoðun á verklagi og kröfum, og umræða um erfiðleikana sem hagsmunaaðilar lenda í verða æ brýnari. Til að geta tekið á umræðum og viðbrögðum sem hafa borist hafa í gegnum árin bauð FEIF almenningi, jafnt sem aðildarríkjum FEIF og skipuleggjendum fyrrverandi heimsmeistaramóta að svara könnun í ágúst 2021. Niðurstöður könnunarinnar liggur fyrir og hægt er að sjá samantekt á öllum svörum í glærupakka hér. Könnunin var frekar yfirgripsmikil og má sjá mjög margar mismunandi hugmyndir. Niðurstöðurnar eru nokkuð áhugaverðar og gaman að sjá hversu misjafnar skoðanir fólk hefur. Flestir voru þó sammála um að hafa mótið ekki lengra en viku en næstum helmingur (48%) svöruðu 5 daga. Meirihluti taldi að byggingadómar mættu missa sig en vera kynbótahrossa á heimsmeistaramótum væri mikilvæg upp á ræktun í löndunum. Flestir voru sammála um að ungmennafélagsandinn ætti að ráða ríkjum þ.e.a.s að öll lönd ættu sinn þátttökurétt en mikilvægt þó að á heimsmeistaramótum væri úrval af því besta.

Nýskipaður starfshópur, með fulltrúum frá litlum og stórum löndum, knöpum, liðsstjórum, skipuleggjendum og öðrum embættismönnum – allir með mikla reynslu varðandi heimsmeistaramót og skipulagið – mun taka til starfa um miðjan október til að aðstoða við að stýra fyrirhuguðu endurskoðunarferli varðandi heimsmeistaramótin.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link