Frá Meistaradeild – Breyting á liði Auðsholtshjáleigu
Sú breyting átti sér stað um helgina að Artemisia Bertus dró sig út úr liði Auðsholtshjáleigu og í stað hennar kemur hin unga og efnilega Hekla Katharína Kristinsdóttir…
Hekla Katharína er hestamönnum vel kunn en hún var valin efnilegasti knapinn 2010. Hún er Landsmótssigurvegari í yngri flokkum og hefur auk þess unnið fjölmarga Íslandsmeistaratitla. Hekla er nemandi á hestabraut Hólaskóla en er nú í vetur í verknámi á hrossaræktarbúinu Feti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH