Skráning á WR mót í dag

  • 12. apríl 2012
  • Fréttir
Skráning á WR mót í dag

Skráning í Opna íþróttamót Mána (World Ranking) sem haldið verður dagana 20.-22. apríl verður fimmtudaginn 12. apríl í Mánahöllinni og í síma milli kl. 20 og 22. Einnig verður tekið á móti skráningum á netfangið [email protected].(Netskráningu lýkur fimmtudaginn 12. apríl kl. 24.)

 
Skráningargjald er kr. 3.500 á grein nema í pollaflokka kr 1.500.   Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum og flokkum. ATH einnig verða pollaflokkar í boði (Ekki raðað í sæti).
Einnig viljum við vekja sérstaka athygli á því að í boði verða einnig T5 og T7
(T5 -Verkefni:
Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd
Hraðabreytingar, aukinn hraði á langhliðum, hægt tölt á skammhliðum.)
(T7-Verkefni:
Hægt tölt – hægt niður á fet og skipt um hönd
Frjáls ferð á tölt)
 
Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, IS númer hests, keppnisgrein, flokkur og upp á hvora hönd er riðið í hringvallagreinunum.  Þeir sem hringja eða senda póst þurfa að láta kortanúmer og gildistíma korts fylgja.
 
Símar til að hringja í á fimmtudagskvöldið eru:
695-0049     vodafone
866-0054     síminn
861-2030     Nova
869-3530    síminn
861-9641    síminn
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link