Hestafimi á Hulmenhof

  • 19. október 2021
  • Fréttir

Svisslendingar eru ekki einungis áhugasamir um keppni og ræktun en margir þeirra nota „off-seasonið“ í að bjóða hrossunum sínum upp á fjölbreytta þjálfun.

Andrea og Mathias Meier’s eru ein af þeim en þau eru mjög dugleg að bjóða hestunum sínum upp á fjölbreytta þjálfun. Þá búa á búgarðinum Hulmenhof nálægt Winterthur og buðu nýlega upp á sérstakt heilsunámskeið fyrir hesta ásamt hestafimiþjálfaranum Daniela Dätwyler-Endres.

 

Myndskeið: Isibless.de

Þjálfunarhugmynd Daniela’s AnimaFit bíður tvífættum og fjórfættum þátttakendum upp á röð krefjandi kennslustunda á þrautabraut. Fyrst er farið í bóklega kennslu eða fræðilega kynningu á þeim ábendingum og aðferðum sem notaðar eru í þrautunum. Skref fyrir skref er farið í grunnatriði þar sem byrjað er á vinnu við hendi t.d.  stöðvun, láta hestinn bakka og færa sig til, senda hestinn í kringum sig og síðan fært sig yfir í flóknari æfingar.

Hvort sem það voru æfingar á einstökum hindrunum eða samsetning mismunandi færniþátta, voru allir þátttakendur sammála um það að AnimFit var mjög skemmtilegt og að hestsfimi verði hluti af venjulegri þjálfun í framtíðinni.

Myndir: Isibless.de

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link