FEIF leitar eftir ungum nefndarmeðlimum

  • 18. október 2021
  • Fréttir
FEIF leitar að áhugasömum einstaklingum á aldrinum 20-26 ára til að taka þátt í íþróttanefnd og kynbótanefnd FEIF

FEIF leitar að áhugasömum og duglegum einstaklingum á aldrinum 20-26 ára til að taka þátt í nefndarstörfum á vegum FEIF. „Hjálpið okkur við að móta framtíð íslenska hestaheimsins. Það eru sæti í nefndunum, eyrnamerkt ungu fólki, sem verða laus frá febrúar 2022 og við erum að leita að þér,“ segir á vefsíðu FEIF. Einstaklingarnir munu hafa sama atkvæðarétt og hver annar nefndarmeðlimur og munu geta starfað í nefndunum allt að tveimur árum.

Sótt er um beint í gegnum FEIF en ekki þarf að fara í gegnum landsambandið í sínu heimalandi. Umsóknin þarf að innihalda ferilskrá, kynningarbréf og upplýsingar um tvo meðmælendur. Umsóknina skal senda á [email protected]. Það er mikill kostur og helst á umsækjandi að þekkja starf FEIF, hafa tekið þátt í einhverjum viðburði á vegum FEIF sem þátttakandi eða sem sjálfboðaliði. Ætlast er til að nefndarmeðlimir mæti á tvo alþjóðlega fundi á ári, sem oftast eru haldnir í febrúar og október.

Æskulýðsnefnd FEIF, með samþykki stjórnar FEIF, velur aðilana í nefndirnar.

Sæti eru laus í eftirfarandi nefndir:
Íþróttanenfd FEIF
Ræktunarnefnd FEIF

Nánari upplýsingar eru að finna í reglubók FEIF, kafla Y1.1.5. Ef þú vilt vita meira um hvað nefndarmenn geta búist við og hvað þeir þurfa að leggja af mörkum smelltu hér.

 


						

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link