HM 2025 í Þýkalandi eða Sviss
Heimsmeistaramót fara fram á tveggja ára fresti (nema heimsfaraldur standi í vegi fyrir því) eins og flestir hestamenn vita. Undirbúningur þessara risastóru viðburða tekur venjulega verulega langan tíma því auk þess að vera að skipuleggja tiltölulega hefðbundið mótahalda þarf að hugsa út í aðstöðu fyrir öll þátttökuliðin sem eru um það bil 20 lönd (hesta, knapa, umsjónaraðila, allan búnað sem fylgir þessu fólki ásamt fleiru) og það þarf að hugsa út í aðbúnað fyrir áhorfendur, reysa stúkur, skipuleggja veitingar fyrir allt að 14.000 gesti (tölur frá Berlín) sem koma á hverjum degi, öryggisviðbúnað, aðstöðu fyrir söluaðila, kynningarbása, partýsvæði, bílastæði og tjaldstæði, svo eitthvað sé nefnt. Það er því gríðarlegt skipulag sem liggur að baki hverju móti.
Allir sem eru tilbúnir að takast á við slíka áskorun, taka hana alvarlega og eru tilbúnir að uppfylla kröfulista FEIF sem byggist á áratuga reynslu í að halda heimsmeistaramót, eiga nú þegar skilið mikla viðurkenningu.
Lokafrestur fyrir áhugasama umsækjendur til að halda heimsmeistaramót árið 2025 lauk nú fyrir stuttu. FEIF bárust tvær umsóknir; annars vegar að halda mótið í Sviss eða Þýskalandi.
- Sviss, nálægt Zurich. Haldið á búgarði sem verður stækkaður og byggður upp til að uppfylla kröfur fyrir heimsmeistaramót. Skipulagsstjóri er Roman Spieler en bakvið umsóknina er landsamband hestamanna í Sviss IPV CH og hópurinn sem stóð á bakvið heimsmeistaramótið í Sviss 2009
- Þýkaland, Mannheim. Haldið í sýningarmiðstöðinni Maifeld í Mannheim, aðstaðan er venjulega notuð fyrir ýmis konar sýningar, stórar samkomur og tónleika. Nú þegar er stúka á staðnum ásamt fleiri innviðum. Formaður skipulagsnefndar er Jan Michael Madsen og með honum eru miklir reynsluboltar vanir viðburðar-, keppnis- og sýningarhaldi í íslands og stór hestaheiminum frá Þýskalandi, Íslandi og Danmörku.
Það er spennandi að sjá hvort staðurinn verður fyrir valinu en ákvörðun mun liggja fyrir fyrir 31.desember 2021.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH