Heimsmetin í skeiði
Rifjum upp heimsmetin í skeiði en í sumar setti Daníel Ingi Smárason heimsmet á Huldu fran Margaretehof þegar þau fóru 250 m. á skeiði á tímanum 21,07 sek. Fyrrum heimsmet, 21,15 sek., átti Konráð Valur Sveinsson á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu. Daníel Ingi er eini íslendingurinn sem á heimsmet í skeiðgrein en hér fyrir neðan er listi yfir heimsmetin.
Heimsmet í skeiði
| 250 metra skeið | Daníel Ingi Smárason | Hulda från Margaretehof | 21,07 sek. | 04. júní 2021 |
| 150 metra skeið | Catherine Gratzl | Blökk frá Kambi | 13,47 sek. | 25. júní 2011 |
| 100 metra skeið | Carina Mayerhofer | Frami von St. Oswald | 6,95 sek. | 26. ágúst 2012 |
Heimsmet í skeiði í gamla kerfinu (manual time-keeping).
| 250 metra skeið | Magnus Lindquist | Thor från Kalsvik | 19,86 sek. | 09. maí 2004 |
| 150 metra skeið | Samantha Leidesdorff | Mondrian vom Lucahof | 13,75 sek. | 03. júní 2007 |
| 100 metra skeið | Sigurður Sigurðarson | Drífa frá Hafssteinsstöðum | 7,18 sek | 04. júlí 2007 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH