Skráning á Reykjavíkurmót í kvöld
Nú styttist í opna WR* Reykjavíkurmót Fáks en það fer fram í Víðidalnum dagana 3.-6.maí næstkomandi.
Keppt verður í eftirtöldum flokkum ef næg þátttaka fæst, að öðrum kosti áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður eða sameina einstaka flokka. B-úrslit verða riðin í þeim flokkum sem ná 20 eða fleiri skráningum:
• Barnaflokkur: 4g, tölt
• Unglingaflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
• Ungmennaflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
• 2.flokkur: 4g, 5g, tölt
• 1.flokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
• Meistaraflokkur: 4g, 5g, tölt, slaktaumatölt og gæðingaskeið
• 100 m skeið
Skráning
Skráning fer fram í Reiðhöllinni þriðjudaginn 24.apríl milli kl. 19:00 og 21:00. Hægt er að mæta á staðinn eða hringja í eitthvað af neðantöldum símanúmerum. Einnig verður hægt að skrá með því að senda tölvupóst á netfangið [email protected], gegn því að allar upplýsingar komi fram ásamt kortanúmeri og símanúmeri viðkomandi, fram til kl. 23:59 á þriðjudaginn 24.apríl. Eftir það verður ekki undir neinum kringumstæðum tekið við skráningum og skráningar sem berast eftir auglýstan frest álitnar ógildar.
• 567 0100 – Vodafone
• 567 2166 – Vodafone
• 898 8445 – Vodafone
• 897 4467 – Síminn
• 864 0505 – Síminn
• 697 3630 – Nova
Gjöld eru sem hér segir:
• Skráning per grein fullorðnir og ungmenni – kr. 5.000 (skuldlausir Fáksfélagar kr. 4.000)
• Skráning per grein börn og unglingar, skeið – kr. 3.500 (skuldlausir Fáksfélagar kr. 2.500)
• Breytingagjald eftir að skráningu lýkur – kr. 1.000
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH