Harpa Dögg knapi ársins hjá Snæfellingi

  • 6. nóvember 2021
  • Fréttir

Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir er knapi ársins 2021 hjá hestamannafélaginu Snæfellingi.

Uppskeruhátíð hestamannafélagsins Snæfellings.

Uppskeruhátíð Snæfellings var haldin í gærkvöldi og er þar hefð að börn, unglingar og ungmenni sem keppa fyrir félagið á árinu fái hvatningarverðlaun frá félaginu en einnig eru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi áragnur á árinu í hverjum flokki og fyrir knapa ársins. Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir var valin knapi ársins hjá Snæfellingi árið 2021 en hún átti góðu gengi að fagna á keppnisvellinum í ár en hún keppir í unglingaflokki.

Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson á Bergi fengu viðurkenningu fyrir ræktunarbú ársins. Frá þeim voru sýnd fjöldi kynbótahrossa með góðum árangri.

Nánari upplýsingar um aðra verðlaunahafa er hægt að sjá hér Uppskeruhátíð Hestamannafélagsins Snæfellings

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link