Það fer að koma að lokaskilum haustskýrslna
Nú er tími haustskýrslna en síðasti skiladagur á þeim er 20. nóv. nk. Á heimasíðu RML má finna leiðbeiningar sem ætlaðar eru búfjáreigendum sem vilja sjálfir skrá sínar haustskýrslur.
Leiðbeiningarnar eru tvíþættar og miðast annars vegar við þá aðila sem skila skýrslu í gegnum Bústofn og hins vegar þá aðila sem skila skýrslu eingöngu í gegnum hjarðbók WorldFengs.
Þeir sem ekki hafa tök á að skila sínum haustskýrslum sjálfir, geta fengið til þess aðstoð hjá starfsfólki RML. Fyrir slíka þjónustu er innheimt samkvæmt verðskrá RML.
Athygli skal vakin á því að 20. nóvember ber núna upp á laugardag.
Opnunartími hjá RML er 08-16 virka daga nema föstudaga, þá er opið 08-12.
Athugið að einnig er hægt að senda fyrirspurnir í gegnum netspjallið á heimasíðu rml.
Leiðbeiningar og nánari upplýsingar
www.rml.is
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH