Kynning á nýju greiningartæki frá Werkman
Járningamannafélag Íslands mun standa að viðburði þann 3. desember þar sem Jonathan Nunn og Bart Wolfs koma til landsins á vegum félagsins og munu halda opna kynningu fyrir járningamenn, dýralækna og almenna hestamenn.
Á þessum viðburði er lögð áhersla á nýtt tæki Black frá Werkman en í tilkynningu félagsins kemur fram: “Black er fyrsta og eina greiningartækið fyrir járningarmenn og dýralækna í heiminum. Tækið gerir þér kleift að fylgjast stafrænt með hreyfiferlum á hófum hestsins. Hárnákvæmir skynjarar taka upp minnstu hreyfingu hófsins starfrænt og breyta þeim í þrívíddar hreyfimynd með yfirliti sem auðvelt er að túlka. Hreyfiskynjararnir eru sérstaklega þróaðir fyrir hófa og safna öllum viðeigandi gögnum um lendingu, niðurstig, uppstig og hreyfiferla hófsins. Uppgötvaðu styrk stöðugra upplýsinga og fylgstu með þróun hreyfinga yfir ákveðið tímabil. Black sér það sem við með berum augum sjáum ekki og myndavél getur ekki tekið upp.”
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH