Áningarhólf fyrir hesta og menn að Fjallabaki
Staðsetningarnar ættu að verða komnar inn í kortasjá LH í næstu uppfærslu kortasjárinnar.
Fyrir þremur árum fór hestamannafélagið Geysir af stað með það verkefni að koma upp áningarhólfum með 7-9 km millibili á fjölförnum leiðum að Fjallabaki. Markmiðið var að auðvelda ferðamönnum á hestum áningar og hestaskipti, auka öryggi meðan á áningu stendur og stuðla að landvernd með því að koma í veg fyrir að áningar hestamanna skemmi viðkvæman gróður. Til að hrinda verkefninu í framkvæmd var sótt um styrki til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Geysir hefur fengið úthlutun síðustu tvö ár og er búið að koma upp áningarhólfum á Dómadalsleið frá Tröllkonuhlaupi og austur á Kýlinga austan Landmannalauga. Til verksins voru fengnir bændurnir Berglind og Erlendur í Skarði í Landssveit, en þau þekkja Landmannaafréttinn jafn vel og lófann á sér.
Áningarhólfin á Dómadalsleið eru nú orðin á eftirfarandi stöðum:
- Við Tröllkonuhlaup (gerði)
- Í Sölvahrauni (gerði)
- Áfangagil (næturhólf og gisting)
- Við Valahnúka (gerði)
- Í Lambafit (gerði)
- Á Hellismannaleið í Lambafitjahrauni (gerði nærri Helliskvísl)
- Landmannahellir (næturhólf og gisting)
- Í Dómadal (gerði)
- Við Frostastaðavatn (gerði)
- Landmannalaugar (næturhólf og gisting)
- Við Eskihlíðarvatn (gerði)
- Á Kýlingum (gerði)
Á næstu 2-3 árum er ætlunin að halda áfram uppbyggingunni og taka fyrir Emstruleið og Fjallabaksleið syðri vonandi á næsta ári.
Þessr myndir voru teknar við Eskihlíðarvatn í sumar meðan á framkvæmdinni stóð.
Kortasjá LH er hægt að sjá HÉR.
Einnig er vert að benda á að ýmsar reiðleiðir eru innan friðlandsins að Fjallabaki sem ekki eru allar merktar inn á kortasjá LH. Kort með reiðleiðum innan friðlandsins að Fjallabaki er á vef Umhverfisstofnunar. Athugið að sumar af reiðleiðunum eru með takmörkunum, t.d. að sums staðar má aðeins fara um einhesta. Mikilvægt er að hestamenn fari eftir þeim tilmælum til að ekki komi til að umferð hestamanna verði takmörkuð um friðlandið að Fjallabaki. Okkur hestamönnum er nauðynlegt að ganga vel um landið okkar á ferðalögum og gæta þess að spilla ekki landi.


Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH