Niðurstöður liggja fyrir í FEIF Tour Rider Cup
Simone Freese sigurvegari Tour Rider Cup 2021 á hesti sínum Tryggva von Walsheim
FEIF stóð fyrir frístundakeppni, Tour Rider Cup, fyrir alla þá sem hafa gaman af því að njóta náttúrunnar á hestbaki, einir eða í hópi. Knapar söfnuðu stigum fyrir ferðir sínar með því að slá inn upplýsingar um ferðirnar á netið og þannig var hægt að bera saman heildarreiðtímann við tíma annarra. Keppnin hófst 1. maí, á alþjóðadegi íslenska hestsins, og henni lauk í lok október.
Niðurstöðurnar liggja nú fyrir en það var Simone Freese (fullorðin), frá Þýskalandi, sem sigraði á hesti sínum Tryggva von Walsheim með 167,5 stig. Í öðru sæti var Jaime Jackson (fullorðin) frá Bandaríkjunum á hestinu Holly með 161 stig og í því þriðja var Lilu (ungmenni), frá Þýskalandi, á hestinum Glampa von Arula en hún sigraði jafnframt ungmennaflokkinn. 50 bestu þáttakendurnir fá allir verðlaun eða dagatal sem verður gefið út rétt fyrir jól með öllum bestu myndunum sem sendar voru inn í myndakeppni FEIF.
Næsta frístundakeppni, Tour Rider Cup, mun byrja 1. maí 2022 og hvetjum við alla að taka þátt en frekar upplýsingar er hægt að sjá HÉR
NIÐURSTÖÐUR
1. sæti með 167,5 stig Simone Freese (fullorðin, DE) – Tryggvi von Walsheim
2. sæti með 161 stig Jaime Jackson (adult, US) – Holly
3. sæti með 159 stig Lilu (Young Rider, DE) – Glampi von Arula
4. sæti með 75,5 stig Kylia (adult, DE) – Stjarni
5. sæti með 73,5 stig Japhie (Young Rider, BE) – Hending
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH