Fyrstu Vetrarleikar Sóta með nýju sniði

  • 12. febrúar 2013
  • Fréttir
Fyrstu Vetrarleikar Sóta með nýju sniði

„Fyrstu vetrarleikar Sóta, sem fóru fram síðastliðinn laugardag, voru með alveg nýju sniði. Í stað tölts og þrígangs var keppt í þrautabraut í nýja gerðinu og voru fimm lið skráð til leiks. Mikill spenningur var í loftinu og biðu allir keppendur í miðju gerðinu meðan einn fór brautina í einu á tíma. Allir skemmtu sér konunglega og var keppnin bæði spennandi og skemmtilegt. Næstu vetrarleikar verða með svipuðu sniði en verða haldnir á vellinum ef aðstæður leyfa. (myndir frá GR verða settar á Facebook um leið og þær berast)   Úrslit urðu þannig: 

 
Barnaflokkur
Patrekur Örn Arnarsson á Perlu   4 stig 
 
Unglingaflokkur 
Marín Rún Einarsdóttir á Júní  4 stig 
Ólafía María Aikman á Ljúf   3 stig 
Margrét Lóa Björnsdóttir á Klassík  2 stig 
 
Fullorðnir 
Haraldur Aikman á Bleik  4 stig 
Ari Sigurðsson á Skörungi  3 stig 
Einar Þór Jóhannsson á TúkallI  2 stig 
 
Allir keppendur sem tóku þátt fengu 1 stig. 
 
Tilþrifabikarinn fékk Haraldur Aikman 
 
Staðan í liðakeppninni er þannig: 
Sex                8 stig 
Villikettirnir    7 stig  
Villimennirnar 6 stig 
Jörarnir          6 stig 
Breiðir Frakkar 3 stig,“segir í tilkynnigu frá Sótamönnum 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link