465.461 hross hlutu nýtt kynbótamat í vikunni

  • 19. nóvember 2021
  • Fréttir
Gögn um kynbótamat í valpörunum og stóðhestavali mun verða uppfært síðar

Nýr kynbótamatsútreikningur liggur nú fyrir inni á WorldFeng fyrir alls 465.461 hross. Fjöldi alþjóðlegra kynbótadóma sem lágu til grundvallar útreikningnum var 34.499 kynbótadómar og skiptist eftir löndum:

Ísland 21.416
Svíþjóð 4.266
Þýskaland 3.534
Danmörk 2.661
Noregur 1.213
Austurríki 346
Finnland 289
Holland 292
Bandaríkin 224
Kanada 117
Sviss 102
Bretland 39

Alls var tekið tillit 958 arfgerðargreindra hrossa í útreikningum. Að þessu sinni birtist kynbótamat óháð öryggi, vert er þó að vekja athygli á að spá með öryggi undir 60% verður að túlkast með varúð. Nýja kynbótamatið er kvarðað á eftirfarandi hátt: Meðaltal hrossa í útreikningunum með dóm frá Íslandi síðustu 10 árin skorðað sem 100 og 10 stig í dreifni einkunna samsvarar 1 staðalfráviki eðlisfars hvers eiginleika. Í ár var viðmiðunarhópurinn dæmdur 2011 – 2021. Gögn um kynbótamat í valpörunum og stóðhestavali mun verða uppfært síðar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link