Fyrirlestur um magasár

  • 19. nóvember 2021
  • Fréttir
Dýralæknaneminn Úndína Ýr með vitundarvekjandi fyrirlestur
Í gærkvöldi fór fram fyrirlestur í félagsheimili Fáks um magasár í hestum en það var dýralæknaneminn Úndína Ýr Þorgrímsdóttir sem var með erindið. Í fréttatilkynningu frá Fáki þótti fyrirlesturinn hafa heppnast frábæralega. „Í gærkvöldi lýsti Úndína Ýr Þorgrímsdóttir dýralæknanemi magasári í hestum í bæði máli og myndum á afar vel heppnuðum fyrirlestri sínum fyrir Fáksfélaga. Miklar umræður spunnust um efnið, svo miklar að varla gafst tími til þess að fara í kaffi. Eftir kaffi og meðí renndi Einar Ásgeirsson frá Fóðurblöndunni yfir helstu atriði varðandi fóðrun hesta og leysti svo viðstadda út með afsláttarmiðum á fóðurvörum. Fræðslunefnd Fáks vill þakka bæði Úndínu Ýr og Einari fyrir frábær og vitundarvekjandi erindi sem og öllum þeim sem mættu í gær. Óhætt er að segja að allir viðstaddir hafi farið mun fróðari heim.“ segir í tilkynningunni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link