KB mótaröðin á næsta leiti
Fyrsta mót KB mótaraðarinnar verður haldið í Faxaborg laugardaginn 14. febrúar n.k. og hefst kl. 10.
Keppt verður í fjórgangi V2 í öllum flokkum. Keppt er í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, 2. flokki, 1. flokki og opnum flokki.
Skráningu skal lokið fyrir kl. 24 miðvikudaginn 11. febrúar og verður unnt að skrá í skráningakerfi Sportfengs eftir mánudaginn. Velja skal Skugga sem mótshaldara. Þeir sem skrá um helgina senda nauðsynlegar upplýsingar á netfangið [email protected] og fá þá sent númer reiknings svo hægt sé að standa skil á skráningargjöldum sem eru kr. 1.000. – í barna – og unglingaflokki en kr. 2.500.- í öðrum.
Bent er á Facebook síðu mótaraðarinnar en þar koma nánari upplýsingar til með að birtast og þar er einnig hægt að koma á framfæri fyrirspurnum og athugasemdum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mótanefnd KB mótaraðarinnar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH