Svíþjóð með sterkt lið á HM?
Fjórgang meistra sigraði Kristján Magnússon á stóðhestinum Óskari frá Lindeberg. Óskar þessi er undan Oliver frá Kvistum og Fram frá Lindeberg. Hesturinn er einungis sjö vetra en virðist vera á góðri leið miðað við einkunnir. Í forkeppni í fjórgangi var einkunn þeirra 7,37 en þeir sigruðu A-úrslitin með 7,30 í einkunn. Þeir stóðu einnig efstir að lokinni forkeppni í tölti og hluti í einnkunn 8,00. Þeir mættu hins vegar ekki til úrslita í tölti.
Vignir Jónasson og Viking frá Österaker sigruðu A-úrslit í tölti T1 með 8,33 í einkunn. Vignir mætti einnig með Viking til leiks í fimmgangi og hlaut hann í forkeppni 7,77 en í úrslitum 7,79. Hann sigraði með miklum yfirburðum rúmlega heilum hærri en næsti keppandi sem var með 6,76 í einkunn.
Vignir sigraði einnig slaktaumatölt á Mímir frá Lindarbakka en hann hélt 1.sætinu frá því í forkeppni og var einkunn þeirra í A-úrslitum 7,71.
Skeiðgreinar
Gæðingaskeið á þessu sama móit sigraði Marcus Jonsson og Silfurtoppur frá Kaldbak með 7,42 í einkun. 100 metra skeið Carina Jylaback og Jóra frá Lövhagen en tími þeirra var 7,50 sekúndur. Heimsmeistarinn í 100 metra skeiði frá því á síðastliðnu heimsmeistaramóti, Charlotte Cook, varð í þriðja sæti á Sælu frá Þóreyjarnúpi, tími þeirra 7,70 sekúndur. En þær sigruðu 250 metra skeið á tímanum 22,10 sekúndum. Í öðru sæti varð Helena Kroghen á Tuma frá Borgarhóli en tími þeirra var 22,60 sekúndur.
Magnús Skúlason í stuði
Einn eftirminnanlegasti sigur á síðastliðinu heimsmeistaramóti var sigur þeirra Magnúsar Skúlasonar og Völsu frá Brösarpsgarden í gæðingaskeiði. Magnús var ekki skráður til leiks í Backome en hann keppti hins vegar á worldranking móti í Everöd þanng 21-26 maí 2019. Þar hlaut hann í gæðingaskeiði 8,59 og sigraði einnig 100 metra skeið á tímanum 7,67.
Á þessu sama mót náði Katie Sundin Brumpton góðum árangri í tölti á Smára frá Askagarden og hlaut hún 8,10 í forkeppni.
Þetta er einungis brot af þeim góða árangri sem knapar í Svíþjóð eru að ná og lítur út fyrir að hægt verði að stilla upp sterku Sænsku landsliði.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt