Kóngur um stund

  • 9. september 2015
  • Fréttir

Farandgripurinn Kóngur um stund

Í tilefni af aldarafmælis Gunnars heitins Bjarnasonar hrossaræktarráðunauts.

Á nýafstöðnu heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Herning í Danmörku, var í fyrsta sinn, afhentur farandgripur í minningu Gunnars Bjarnasonar, en það voru afkomendur Gunnars sem stóðu fyrir þessari mætu gjöf.

Úthlutun veðlaunana var í höndum stjórnar FEIF, sem ákvað að veita þau Bo Hansen og konu hans Maju, sem báru hitann og þungan af undirbúningi heimsmeistaramótsins í Herning.  Eins og flestir vita var umgjörð heimsmeistaramótsins sú besta sem menn hafa upplifað til þessa og því móttakandi farandverðlaunanna vel að þeim kominn.

Verðlaunagripurinn ber hestshöfuðið, sem Gunnar teiknaði og var „logo“ bókamerki hans og situr á fótstalli lerkis úr Hallormsstaðaskógi.  Hann ber nafnið „ Kóngur um stund“.  Gripinn,  með merki FEIF og áletrun um öll Evrópu og heimsmeistaramót frá upphafi, gerði fyrirtækið Traust ehf að Lækjarkoti í Borgarfirði, en fótstallinn útbjó fyrirtækið Eiríkur Ingólfsson ehf í Borgarnesi.

Gunnar Bjarnason flutti fyrstu átta gæðingana út frá Íslandi með farþegaskipinu Gullfossi árið 1954 með þeirri bjargföstu sýn, að íslenski gæðingurinn með öllum sínu gangtegundum, vilja og þrótti, sál og innsæi myndi sigra með því að ná til æ fleiri einstaklinga í framtíðinni.

Draumarnir hafa ræst og hugsjón Gunnars Bjarnasonar, eins og 10 evrópumeistaramót og 13 heimsmeistaramót íslenska hestsins sanna, ásamt með öllum þeim um heim allan, sem unna íslenska hestinum.

Framþróun íslenska hestsins og vinsældir hans um heim allan verður um ókomna tíð samofin nafni Gunnars Bjarnasons hrossaræktarráðunauts.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link