Nýtt frumvarp lagt fram um bann við blóðmerahaldi
Myndin tengist fréttinni ekki
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, lagði í gær fram nýtt frumvarp á Alþingi um bann við blóðmerahaldi á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem Inga Sæland leggur fram frumvarp tengdu blóðmerahaldi en fyrr á árinu en það frumvarp hlaut ekki brautargengi. Atvinnuveganefnd Alþingis bárust 13 umsagnir um frumvarpið frá ýmsum hagsmunaraðilum, félögum, einstaklingum og Matvælastofnun.
Nýja frumvarpið er sambærilegt þessu eldra en þó er orðalag með aðeins öðrum hætti og greinarferð með frumvarpinu önnur. Frumvarpið er eitt af þeim frumvörpum sem Flokkur fólksins mun setja í forgang og vonast Inga að málið verði tekið til umræðu á Alþingi fyrir jól.
Blóðmerahald hefur verið bannað í löndum ESB þar sem það þykir brjóta gegn lögum um dýravernd. Ísland er eina landið í Evrópu þar sem blóðtaka úr fylfullum hryssum er stundað.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH