Álfaklettur hefur fyljað hátt í 190 hryssur í sumar
Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum er einn vinsælasti stóðhesturinn til notkunar í dag. Álfaklettur vakti fyrst mikla athygli í fimmgangnum í Meistaradeildinni árið 2020 og undirstrikaði hann síðan ágæti sitt þegar Olil Amble, ræktandi hans og eigandi, sýndi hann í kynbótadómi sama ár. Hlautt hann 9,01 fyrir hæfileika, 8,82 fyrir sköpulag og 8,94 í aðaleinkunn, sem er aðeins 0,02 frá heimsmeti. Álfaklettur er undan gæðingamóðurinni Álfadís frá Selfossi og heiðursverðlauna hestinum Stála frá Kjarri.
Álfaklettur var að sinna hryssum á Syðri-Gegnishólum í sumar, frá 20. maí til 1. ágúst var hann í sæðingum en síðan fór hann í girðingu til 15. október, en það var dýralæknirinn Susanne Braun sem sá um sæðingarnar. Það er vægt til orða tekið að segja að þær hafi tekist vel til, en Álfaklettur er með 188 staðfestar fengnar hryssur í WorldFeng eftir sumarið. Greinarhöfundur er nokkuð viss um að þetta sé allra mesti hryssu fjöldi sem einn stóðhestur hefur fyljað á einu sumri, ef rangt er með farið má endilega leiðrétta þessa fullyrðingu.
Álfaklettur á nú þegar 204 skráð afkvæmi í WorldFeng.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH