Loki á þau afkvæmi sem hæstu einkunn hlutu fyrir brokk

  • 9. desember 2021
  • Fréttir
Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu

Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.

Eiðfaxi birti í fyrra lista yfir stóðhesta, með ákveðinn fjölda afkvæma, og hverjir af þeim væru að skila hæstu einkunnum fyrir ákveðna eiginleika í sköpulagi og hæfileikadómi. Eiðfaxi ætlar að gera það sama í ár og byrja á því að skoða meðaltal einkunna afkvæma sem komu til fullnaðardóms á árinu fyrir tölt og hægt tölt.

Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu.

Loki frá Selfossi er sá stóðhestur sem skilaði þeim afkvæmum sem eru með hæstu meðaleinkunn fyrir brokk eða 8,42. Hann á alls 18 afkvæmi með fullnaðardóm á árinu og meðalaldur þeirra er 6,8 ár.

Næstur í röðinni er Hróður frá Refsstöðum en meðaleinkunn afkvæma hans fyrir brokk er 8,40. Hróður á alls 10 sýnd afkvæmi á árinu og meðalaldur þeirra er 6,2 ár.

Hér er listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir brokk.

Nafn Fjöldi afkvæma Meðalaldur Brokk
Loki frá Selfossi

18

6,8

8,42

Hróður frá Refsstöðum

10

6,2

8,40

Krákur frá Blesastöðum 1A

10

8,4

8,30

Hreyfill frá Vorsabæ

11

5,5

8,23

Hrannar frá Flugumýri II

30

5,6

8,15

Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum

10

5,6

8,15

Sjóður frá Kirkjubæ

20

6,3

8,13

Trymbill frá Stóra-Ási

16

5,9

8,13

Hringur frá Gunnarsstöðum

12

4,8

8,13

Hnokki frá Fellskoti

23

5,5

8,11

Kiljan frá Steinnesi

14

6,8

8,11

Álfasteinn frá Selfossi

15

7,1

8,10

Draupnir frá Stuðlum

11

4,3

8,09

Jarl frá Árbæjarhjáleigu

13

6,5

8,08

Viti frá Kagaðarhóli

13

5,7

8,08

Arður frá Brautarholti

10

6,6

8,05

Skýr frá Skálakoti

37

5,3

8,01

Herkúles frá Ragnheiðarstöðum

14

5,9

7,96

Konsert frá Hofi

51

5,1

7,93

Óskasteinn frá Íbishóli

16

6,6

7,91

Ölnir frá Akranesi

34

5,4

7,88

Álfur frá Selfossi

27

7,2

7,87

Ómur frá Kvistum

33

6,4

7,85

Spuni frá Vesturkoti

37

6,8

7,84

Eldur frá Torfunesi

11

6,3

7,77

Arion frá Eystra-Fróðholti

29

5,8

7,76

Stáli frá Kjarri

35

6,7

7,71

Skaginn frá Skipaskaga

10

4,9

7,60

Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum

11

5,3

7,50

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link