Afkvæmi Loka og Hrings með hæstu meðaleinkunn fyrir stökk
Hringur frá Gunnarsstöðum, knapi Þórarinn Ragnarsson
Þegar öllum kynbótasýningum er lokið er hægt, með hjálp Worldfengs, að setjast niður og reikna út hin ýmsu meðaltöl hrossaræktendum til gagns og fróðleiks.
Eiðfaxi birti í fyrra lista yfir stóðhesta, með ákveðinn fjölda afkvæma, og hverjir af þeim væru að skila hæstu einkunnum fyrir ákveðna eiginleika í sköpulagi og hæfileikadómi. Eiðfaxi ætlar að gera það sama í ár og byrja á því að skoða meðaltal einkunna afkvæma sem komu til fullnaðardóms á árinu fyrir stökk og hægt stökk.
Alls eru 29 stóðhestar sem eiga 10 eða fleiri dæmd afkvæmi á árinu.
Af þeim stóðhestum sem eiga 10 eða fleiri dæmda afkvæmi í ár eru afkvæmi Loka frá Selfossi með hæstu meðaleinkunn fyrir stökk og hægt stökk en þau hlutu 8,50 fyrir stökk og 8,47 fyrir hægt stökk. Loki á alls 18 sýnd afkvæmi í ár og meðalaldur þeirra er 6,8 ár.
Hringur frá Gunnarsstöðum er jafn Loka frá Selfossi þegar kemur að meðaleinkunn afkvæma fyrir stökk en þau hlutu einnig 8,50 í meðaleinkunn fyrir stökk. Meðalaldur þeirra er 4,8 ár og átti Hringur 12 sýnd afkvæmi í ár.
Á eftir þeim Loka og Hring er Hreyfill frá Vorsabæ með 11 dæmd afkvæmi sem eru 5,5 vetra að meðaltali með meðaleinkunnina 8,41 fyrir stökk.
Hér er listi yfir alla þá stóðhesta sem eiga 10 eða fleiri fullnaðardæmd afkvæmi á árinu raðað eftir meðaleinkunn fyrir stökk.
| Nafn | Fjöldi afkvæma | Meðalaldur | Stökk | Hægt stökk |
| Hringur frá Gunnarsstöðum | 12 | 4,8 | 8,50 | 8,21 |
| Loki frá Selfossi | 18 | 6,8 | 8,50 | 8,47 |
| Hreyfill frá Vorsabæ | 11 | 5,5 | 8,41 | 8,09 |
| Draupnir frá Stuðlum | 11 | 4,3 | 8,36 | 7,82 |
| Sjóður frá Kirkjubæ | 20 | 6,3 | 8,25 | 7,85 |
| Arion frá Eystra-Fróðholti | 29 | 5,8 | 8,24 | 7,79 |
| Skýr frá Skálakoti | 37 | 5,3 | 8,23 | 7,99 |
| Kiljan frá Steinnesi | 14 | 6,8 | 8,21 | 7,89 |
| Hrannar frá Flugumýri II | 30 | 5,6 | 8,18 | 7,80 |
| Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum | 11 | 5,3 | 8,18 | 7,91 |
| Herkúles frá Ragnheiðarstöðum | 14 | 5,9 | 8,18 | 8,07 |
| Konsert frá Hofi | 51 | 5,1 | 8,13 | 7,67 |
| Ölnir frá Akranesi | 34 | 5,4 | 8,12 | 7,71 |
| Viti frá Kagaðarhóli | 13 | 5,7 | 8,12 | 7,85 |
| Arður frá Brautarholti | 10 | 6,6 | 8,10 | 7,50 |
| Hróður frá Refsstöðum | 10 | 6,2 | 8,10 | 8,05 |
| Krákur frá Blesastöðum 1A | 10 | 8,4 | 8,10 | 8,00 |
| Eldur frá Torfunesi | 11 | 6,3 | 8,09 | 7,64 |
| Hnokki frá Fellskoti | 23 | 5,5 | 8,07 | 8,00 |
| Skaginn frá Skipaskaga | 10 | 4,9 | 8,05 | 7,60 |
| Ómur frá Kvistum | 33 | 6,4 | 8,05 | 7,74 |
| Jarl frá Árbæjarhjáleigu | 13 | 6,5 | 8,04 | 7,81 |
| Álfasteinn frá Selfossi | 15 | 7,1 | 8,03 | 8,17 |
| Trymbill frá Stóra-Ási | 16 | 5,9 | 8,03 | 7,78 |
| Spuni frá Vesturkoti | 37 | 6,8 | 7,97 | 7,76 |
| Óskasteinn frá Íbishóli | 16 | 6,6 | 7,97 | 7,63 |
| Álfur frá Selfossi | 27 | 7,2 | 7,96 | 7,63 |
| Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum | 10 | 5,6 | 7,95 | 7,85 |
| Stáli frá Kjarri | 35 | 6,7 | 7,89 | 7,64 |
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH