Keppt í fimmgangi í Húnvetnsku

  • 8. mars 2012
  • Fréttir
Keppt í fimmgangi í Húnvetnsku

Blásið verður aftur til leiks í Húnvetnsku liðakeppninni föstudaginn 16. mars nk.:

 
„Næsta mót Húnvetnsku liðakeppninnar er fimmgangur í 1. og 2. flokki og tölt T7 í 3. flokki og tölt T3 í unglingaflokki, fædd 1995 og seinna (fegurðartölt í staðin fyrir yfirferðartölt) en það verður föstudaginn 16. mars nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 13. mars. Skráning er hjá Kollu á mail: [email protected]. Í fimmgangi verða tveir inn á í einu og verður stjórnað af þul. Prógrammið er, tölt, brokk, stökk, fet og skeið (skeiðið eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Töltið verður einnig stjórnað af þul og það verður ekki snúið við og er prógrammið í tölti T7 hægt tölt og svo frjáls ferð á tölti. Í tölti T3 er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar og fegurðartölt.
 
Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 0159-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.
 
Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum mótsins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link