Skráning á opna Barkamótið
Skráning á opna Barkamótið fer fram í kvöld, þriðjudaginn 16. mars, kl. 20:00 – 21:00 í Reiðhöllinni í Víðidal. Einnig er hægt að skrá í síma 567-0100, 898-2018, 893-3559, 691-1115 gegn því að gefa upp kortanúmer fyrir skráningargjöldunum. Mótið fer fram í Reiðhöllinni, nk. laugardag, 20. mars.
Við skráningu þarf að:
- gefa upp nafn og kennitölu knapa;
- gefa upp nafn og IS númer hests;
- gefa upp keppnisflokk;
- greiða 2.500 kr. skráningargjald;
- skrá upp á hvora hönd riðið er.
Keppt er í tölti í þremur flokkum:
- flokkur 17 ára og yngri;
- áhugamannaflokkur;
- opinn flokkur.
Fjölmennum á spennandi Barkamót – þátttaka er öllum opin. Leyfilegt er að skrá fleiri en einn hest til keppni, en komi knapi fleiri en einum hesti í úrslit skal hann velja einn til úrslitakeppni. Hafi parið náð meistaraflokkseinkunn (6.5) í tölti á síðasta ári ber knapa að skrá sig í opinn flokk.
Til mikils er að vinna
Peningaverðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í opnum- og áhugamannaflokki. Í opna flokknum eru 50 þúsund krónur fyrir fyrsta sætið, 20 þúsund fyrir annað og 10 þúsund fyrir þriðja. Í áhugamannaflokki eru 20 þúsund fyrir fyrsta sætið, 10 þúsund fyrir annað og 5 þúsund fyrir þriðja. Gjafabréf verða fyrir sömu sæti í flokknum 17 ára og yngri. Að auki fá allir verðlaunahafar Marstall fóðurbæti að gjöf.
Barki ehf. gefur öll verðlaun á mótinu.
Með hestakveðju,
íþrótta- og mótanefnd Fáks.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH