Reiðsýning útskriftarnema í Hólaskóla

  • 16. maí 2011
  • Fréttir
Reiðsýning útskriftarnema í Hólaskóla

Föstudaginn 20. maí nk. fer fram reiðsýning útskriftanema frá reiðkennarabraut Hólaskóla. Þá fer einnig fram hátíðleg brautskráningarathöfn.

„Eins og menn muna var brautskráning árið 2010 með óvenjulegum hætti vegna veikinda í hrossum, og henni seinkaði til 3. september. Hross nemenda voru þá farin af staðnum, og misjafnar heimtur á nemendum sjálfum, þannig að ekki var talið unnt að bjóða upp á neins konar sýningu á vegum hestafræðideildarinnar, eins og hefð er þó fyrir.

Á föstudaginn munu hins vegar væntanlegir reiðkennarar og þjálfarar (3. árs nemar) bjóða upp á reiðsýningu, á undan sjálfri brautskráningarathöfninni. Sýningin  verður í Þráarhöllinni og hefst kl. 13:00.

Brautskráningarathöfnin verður síðan í Hóladómkirkju, kl. 14:00. Alls munu um 50 einstaklingar verða brautskráðir, frá öllum deildum skólans. Að athöfninni lokinni býður Hólaskóli viðstöddum að þiggja kaffiveitingar í aðalbyggingu skólans.

Sem endranær eru allir eru velkomnir heim að Hólum á föstudaginn. Við hvetjum gesti sérstaklega til að gefa gaum að reiðsýningunni sem væntanlega verður framkvæmd með sönnum glæsibrag,“ segir á heimasíðu Hólaskóla.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link