Nýdómara og landsdómaranámskeið í gæðingadómum
Fyrirhugað er Nýdómara- og Landsdómaranámskeið í gæðingadómum ef næg þáttaka fæst, en 14 þáttakendur þurfa að lágmarki að skrá sig.
Námskeiðið verður daganna 29. apríl og hefst kl. 14 og stendur fram til sunnudagsins 1. maí. Námskeiðinu lýkur með prófi eftir hádegi.
Kennt verður í húsakynnum ÍSÍ í Reykjavík og á svæðum hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu. Mikilvægt er að þáttakendur skrái sig í síðasta lagi miðvikudaginn 20. apríl og staðfesti þáttöku með 25.000 kr staðfestingargjaldi. Verð námskeiðs og gagna er 58.000 kr. fyrir Nýdómaranámskeið og 38.000 kr. fyrir Landsdómaranámskeið. Gögn verða send til þáttakenda um leið og skráningarfrest lýkur. Nauðsynlegt er að fólk sé mjög vel undirbúið þegar námskeið hefst er þar átt við að þáttakendur kunni skil á lögum og reglum LH/Gæðingakeppni og leiðara.
Flest hestamannafélög styrkja sitt fólk til þátttöku og hvetjum við áhugasama til að kynna sér málið og vera í sambandi ef frekari upplýsinga er óskað.
Skráning á námskeiðið og fyrispurninr skal senda á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH