FEIF þjálfari ársins

  • 14. desember 2021
  • Fréttir
Enn er hægt að tilnefna þjálfara ársins hjá FEIF

Enn er hægt að tilnefna FEIF þjálfara ársins en á hverju ári, síðan 2016, útnefnir FEIF þjálfara ársins en í fyrra var það Malin Schön.

FEIF telur þjálfara og kennara vera mikilvægan hlut af íslandshesta samfélaginu og með þessum verðlaunum eru þeir að viðurkenna mikilvægi þeirra. „Þessir hæfileikaríku, einbeittu einstaklingar eru nauðsynlegir til að efla íslenska hestakynið, bæði hvað varðar vinsældir og notagildi, allt innan verksviðs FEIF. “ segir á heimasíðu samtakanna. Allir umsækjendur verða að vera skráðir á lista FEIF sem hestaþjálfarar. Aðildarfélögin hafa frest til 15. desember til að tilnefna þann þjálfara sem fyrir þeim á þennan heiður skilið.

Kosið verður síðan á netinu á heimasíðu FEIF dagana 10. – 17. janúar 2022 en kosningin er opin fyrir alla. Tilkynnt verður síðan um sigurvegarann á árlegri ráðstefnu FEIF 4. febrúar í Osló.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link