„Annað hvort segja bara já og amen eða gera eitthvað í málinu“
Þráinn frá Flagbjarnarholti hefur fengið nýja eigendur en íslenskt einkahlutafélag, Þráinsskjöldur ehf, hefur fest kaup á stóðhestinum. Félagið Þráinsskjöldur, undir forustu Þórarins Eymundssonar, var stofnað nú á dögunum til að koma í veg fyrir að hesturinn færi úr landi. Eiðfaxi heyrði í Þórarni og spurði hann um tilurð kaupsins; “Það hafa verið að berast tilboð í hestinn undanfarna mánuði, misalvarleg, og ég vissi að eigendur hans gátu hugsað sér að selja hestinn ef rétt tilboð kæmi. Í haust kom síðan tilboð í hann og ég heyrði á þeim að þeim leist mjög vel á en það skipti þau líka máli að hesturinn færi á góðann stað. Á sama tíma var ég farinn að sjá trippinn undan honum og spyrjast aðeins fyrir um þau en þau hafa fengið mjög jákvæða dóma. Ég bað þau um að fá að fylgjast með þróun mála og skynjaði að þetta væri af alvöru. Það var því annað hvort að segja bara já og amen eða reyna gera eitthvað í málinu,” segir Þórarinn en á innan við sólarhring var Þórarinn kominn með hóp af kaupendum með honum. “Gekk lyginni líkast en ég hafði trú á þessu og ég hef mikla trú á hestinum, annars hefði ég ekki gert þetta. Ég er stoltur yfir þessu framtaki að halda svona gripum áfram í ræktun á Íslandi, þessar fréttir hafa mælst mjög vel fyrir” bætir hann við.
Hluthafar í félaginu eru nokkrir en má segja að hesturinn verði nokkuð tengdur Skagafirðinum. Þórarinn sjálfur er hluthafi, ásamt tveimur skagfirskum ræktendum, Lilju S. Pálmadóttur eða Hofstorfunni slf. og Miðsitju ehf. en Ása Hreggviðsdóttir og Birgir Birgisson eru þar á bakvið. “Aðrir eigendur eru Austurdalur ehf eða Halldór Ólafur Halldórsson, Svarthöfði hrossarækt ehf eða Birgir Már Ragnarsson, Tappi ehf eða Guðjón Rúnarsson, Hestavegferð ehf sem er hlutfélag í minni eigu og Magnúsar Gylfasonar sem við stofnuðum á sínum tíma í kringum Veg frá Kagaðarhóli,” segir Þórarinn en þegar hann tilkynnti þeim Jaap og Ivonne Groven að hann væri kominn með hóp til að kaupa hestinn þá vildu þau vera hluti af félaginu og eiga því áfram hlut í Þráni.
Þráinn sló í gegn á Landsmóti 2018 þegar hann fór í annað skiptið yfir 9,00 í einkunn fyrir hæfileika og hefur hann síðan þá verið hæst dæmdi stóðhestur í heimi með 8,95 í aðaleinkunn. Hann hefur verið vinsæll kynbótahestur með rúmlega 200 skráð afkvæmi í WF. Félagsskapurinn er einhuga um að halda Þráni áfram hérlendis til ræktunar en hann verður á Suðurlandi eftir Landsmót. Þráinn frá Flagbjarnarholti hefur einnig náð frábærum árangri í keppni bæði innan húss sem utan og er stefnt með hann á Landsmót á Hellu næsta sumar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH