Liðakynning 4 – Áhugamannadeild Equsana 2022
Þá er komið að næstu þremur liðum sem við kynnum til leiks sem munu taka þátt í Equsana deildinni á komandi tímabili, sem hefst 3. febrúar nk., en þetta er næst síðasta kynning liða í deildinni.
Í þessari fjórðu kynningu kynnum við lið Vagna og Þjónustu, Vood og Ganghesta.

Lið Vagna og Þjónustu:
Liðsmenn eru:
Brynja Viðarsdóttir, liðstjóri
Aldur: 57 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Verslunarmaður
Kristín Ingólfsdóttir
Aldur: 48 ára
Hestamannafélag: Sörli
Starfsgrein: Útfarastjóri
Hermann Arason
Aldur: 55 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Framkvæmdastjóri
Vilborg Smáradóttir
Aldur: 41 ára
Hestamannafélag: Sindri
Starfsgrein: Fjárfestir
Auður Stefánsdóttir
Aldur: 51 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Verkefnastjóri og flugfreyja
Þjálfari: Kári Steinsson, hestamannafélaginu Fák.

Lið Vood: Vood liðið samanstendur af topp fólki og gleðipinnum frá Hestamannafélögunum Brimfaxa og Mána
Liðsmenn eru:
Patricia Hobi
Aldur: 30 ára
Hestamannafélag: Brimfaxi
Starfsgrein: Starfsmaður Silica Hotel Blue Lagoon
Sylvía Sól Magnúsdóttir
Aldur: 22 ára
Hestamannafélag: Brimfaxi
Starfsgrein: Hafnarvörður/Vigtarmaður
Jón B. Olsen
Högni Sturluson
Aldur: 50 ára
Hestmannafélag: Máni
Starfsgrein: Járningarmaður
Gunnar Eyjólfsson
Aldur: 59 ára
Hestamannafélag: Máni
Starfsgrein: Pípulagningarmaður
Þjálfari: Snorri Ólason, hestamannafélaginu Mána

Lið Ganghesta: Team Ganghestar er samansett af 5 prímadonnum sem allar eru hestakonur í hjáverkum. Við höfum flestar verið í deildinni frá upphafi og er markmiðið okkar að hafa gaman og verða betri knapar. Mikið barnalán er í hópnum og hafa sennilega fæðst flest börn inn í þetta lið síðan deildin var stofnuð og fylgja okkur knapahópnum 19 börn. Áhugamannadeildin heldur okkur svo sannarlega á tánum og höfum við lagt mikið upp úr því að hafa góða þjálfara og sækja ýmis námskeið á undirbúningstímabilinu. Mikið keppnisskap er í hópnum og er alveg ljóst að þar sem konur koma saman þar er gaman.
Liðsmenn eru:
Petra Björk Mogensen
Aldur: 41 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Viðskiptafræðingur
Jóna Margrét Ragnarsdóttir
Aldur: 38 ára
Hestamannafélag: Fákur
Starfsgrein: Flugfreyja
Arnhildur Halldórsdóttir
Aldur: 42 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Verkefnastjóri
Gunnhildur Sveinbjarnardóttir
Aldur: 42 ára
Hestamannafélag: Fákur
Starfsgrein: Sjúkraliði
Inga Cristina Campos
Aldur: 42 ára
Hestamannafélag: Sprettur
Starfsgrein: Skrifstofustjóri
Þjálfari: Edda Rún Ragnarsdóttir, hestamannafélaginu Fáki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH