Samskipadeildin - Áhugamannadeild Spretts Liðakynning 5 – Áhugamannadeild Equsana 2022

  • 8. janúar 2022
  • Fréttir

Þá er komið að því að kynna næstu þrjú lið sem munu taka þátt í Equsana deildinni á komandi tímabili, sem hefst 3. febrúar nk. Þetta er síðasta kynningin og hafa nú öll lið verið kynnt til leiks.

Dagskrá vetrarins er eftirfarandi:

–        Fimmtudagur 3. febrúar: Fjórgangur

–        Fimmtudagur 17. febrúar: Fimmgangur

–        Fimmtudagur 3. mars: Slaktaumatölt

–        Laugardagur 12. mars: Gæðingaskeið

–        Fimmtudagur 17 mars: Tölt – lokamótið

Í þessari lokakynningu kynnum við lið Límtré Vírnets, Kingsland og Heimahaga, sem var jafnframt stigahæsta lið áhugamannadeild Equsana árið 2021.

 

Lið Límtré Vírnets: Límtré Vírnet er íslenskt iðnfyrirtæki sem byggir starfsemi sína á margreyndum framleiðsluferlum. Fyrirtækið hefur þjónustað byggingariðnaðinn í yfir 60 ár með framleiðslu og sölu á gæðavörum fyrir íslenskan byggingariðnað, og meðal annars sérhæft sig í byggingu á hesthúsum og reiðhöllum. Límtré Vírnet kappkostar að veita góða og persónulega þjónustu þar sem þarfir viðskiptavinarins eru hafðar að leiðarljósi.

Liðsmenn eru:

            Svanhildur Hall

            Aldur: 49 ára

            Hestamannafélag: Geysir

            Starfsgrein: Framkvæmdastjóri

 

            Berglind Ágústsdóttir

            Aldur: 53 ára

            Hestamannafélag: Smári

            Starfsgrein: Hrossabóndi

 

            Gunnar Már Þórðarson

            Aldur: 64 ára

            Hestamannafélag: Sprettur

            Starfsgrein: Vélvirki

 

            Hrafnhildur Guðmundsóttir

            Aldur: Á besta aldri

            Hestamannafélag: Borgfirðingur

            Starfsgrein: Hrossa- og ferðaþjónustubóndi

 

            Björg María Þórsdóttir

            Aldur: 45 ára

            Hestamannafélag: Borgfirðingur

            Starfsgrein: Bóndi og starfsmaður í verslun

Lið Kingsland: Við erum nýtt lið í deildinni og komum öll úr Fáki.  Við erum jákvæð og okkur hlakkar mikið til að taka þátt.  Aðalatriðið og mottóið í liðinu er að hafa gaman að þátttökunni.  Við ætlum að gera okkar besta.

Liðsmenn eru:

Bergdís Finnbogadóttir

Aldur: 44 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Deildarstjóri

 

Svandís Beta Kjartansdóttir

Aldur: 44 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Bóndi

 

Birna Ólafsdóttir

Aldur: 42 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Veitingahúsaeigandi

 

Guðrún Sylvía Pétursdóttir

Aldur: 54 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Framkvæmdastjóri

 

Viggó Sigurðsson

Aldur: 34 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Eigandi Viking Horse

Þjálfari: Steinar Sigurbjörnsson, hestamannafélaginu Fáki.

Lið Heimahaga:

Liðsmenn eru:

Jóhann Ólafsson

Aldur: 53 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Forstjóri

 

Ásgeir Svan Herbertsson

Aldur: 56 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Framkvæmdastjóri

 

Ríkharður Flemming Jenssen

Aldur: 52 ára

Hestamannafélag: Sprettur

Starfsgrein: Tannsmiður

 

Sigurbjörn Viktorsson

Aldur: 45 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Bílasali

 

Edda Hrund Hinriksdóttir

Aldur: 29 ára

Hestamannafélag: Fákur

Starfsgrein: Athafnarkona

 

Þjálfari: Teitur Árnason, hestamannafélaginu Fáki.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar